
Annatími fer í hönd
Framundan er gróandinn og vorið með öllu því sem árstímanum fylgir. Smábátasjómenn gera báta sína klára, bændur safna orku fyrir sauðburð og skólafólk er margt á leið í prófatörn eða verkefnavinnu.
Í sveitunum er fram undan sauðburður og talsverð törn hjá bændum sem eiga margt fé. Á þessari mynd eru ærnar Fura og Krækja á Brennistöðum í Flókadal. Þær una hag sínum vel enda fá þær að liggja við opið. Þótt þær komist einungis út í rétt við fjárhúsin líta þær björtum augum til vorsins og væntanlegra grænna grasa.