
Sýnir stemningsmyndir af Skaganum
Kristján Söbeck opnar ljósmyndasýningu í Akranesvita í dag, fimmtudaginn 30. apríl. Kristján bjó á Ísafirði í 10 ár en er nú búsettur á Akranesi. Hann var meðal annars fréttamaður fyrir RÚV á Vestfjörðum og hefur marga fjöruna sopið. Kristján fluttist eftir dvölina á Ísafirði til Reykjavíkur, bjó þar um tíma en fluttist síðan á Akranes á síðasta ári. „Ég er frá Akranesi, fæddist og ólst hér upp, en flutti héðan rúmlega tvítugur. Nú er ég kominn aftur í mína heimabyggð. Ég er hættur að vinna og hef því tíma til þess að sinna mínu helsta áhugamáli sem er ljósmyndun. Ég er á fullu í því núna og geri ekkert annað,“ segir Kristján. „Núna er ég að fara að setja upp ljósmyndasýningu í vitanum sem mun opna 30. apríl. Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir en ég geri ráð fyrir að sýningin standi yfir í einn eða tvo mánuði. Ég á eftir að ákveða þetta – hugsa að það verði klukkan tvö, fjögur eða fimm sem ég mun opna,“ segir Kristján.
Vinn mest með landslagsmyndir
Allar myndirnar sem verða til sýnis hefur Kristján tekið á Akranesi síðast liðið ár, til dagsins í dag. „Mest er ég að mynda landslag en tek líka að mér ýmis verkefni svo sem hópmyndir, afmælisveislur og aðra slíka viðburði. Ég hef t.d. verið ljósmyndari fyrir Fjallabræður í nokkur ár,“ segir hann. Kristján er spurður út í mynd sem hann hefur í farteskinu og er á meðfylgjandi mynd. „Þessi mynd er tekin á Langasandi. Ég stóð fyrir ofan Guðlaugu og tók mynd ofan í sandinn fyrir framan laugina. Það eru ekki margir sem horfa niður þegar þeir standa þarna því flestir líta til hafs. Þegar fólk gónir yfir Flóann þá sér það ekki þær birtingarmyndir sem fyrirfinnast í sandinum. Sólin gyllir sand, en við samspil ljóss og skugga birtast margar kynjamyndir í sandinum. Ég geng svona 5-10 km á hverjum degi og er yfirleitt með myndavélina á mér, þá sé ég alltaf eitthvað nýtt,“ segir Kristján að lokum.