
Veröld
Veröld – Safn


Að þessu sinni langar mig að segja ykkur litla sögu um fyrrum skólabróður minn frá Háskólanum á Bifröst. Þegar við vorum þar við nám fyrir 30 árum var ég í hópi eldri nemenda en hann var nýstúdent, þ.e. rúmum áratug yngri. Þessi félagi minn var einkar talnaglöggur maður og átti sérlega auðvelt með stærðfræðihluta námsins.…Lesa meira


Í vor verður kosið til sveitarstjórna á Íslandi, nánar til tekið laugardaginn 16. maí. Frestur til að skila inn framboðum rennur út á hádegi föstudaginn 10. apríl. Enn eru því tveir mánuðir til stefnu fyrir þá hópa og samtök sem ætla að bjóða fram krafta sína. Ég er ekkert endilega að segja að óþolinmæði sé…Lesa meira


Tónlistarkonan geðþekka, Laufey Lín Jónsdóttir, hlaut um helgina Grammy verðlaun fyrir nýjustu hljómplötu sína A Matter of Time. Skaut þar ref fyrir rass ekki minni stjörnum en Elton John og Lady Gaga. Gerir aðrir betur! Þá var í síðustu viku kunngjört að loðnukvótinn yrði á þessari vertíð tæp 200 þúsund tonn. Vænta má þess að…Lesa meira


Hjá mörgum skipa íþróttir veigamikinn sess í tilverunni. Ýmist sem beinir þátttakendur eða til stuðnings á ýmsan hátt. Fólk tekur til dæmis þátt í íþróttum barna sinna með því að styðja þau til þátttöku, hvetja, skutla eða leiðbeina. Allir vita að virk þátttaka þeirra í íþróttum er holl fyrir líkama og sál. Hefur fyrirbyggjandi áhrif…Lesa meira


Kennitölur eru afskaplega mikilvægt fyrirbrigði í íslensku samfélagi. Kannski má líkja kennitölu við fanganúmer sem brennd voru á hörund fyrr á tíð; við fáum slíkri tíu stafa tölu úthlutað eftir fæðingu og berum hana til æviloka. Fyrirtæki og stofnanir fá sömuleiðis við stofnun úthlutað kennitölu. Þær eiga það sammerkt að byrja aldrei á lægri tölu…Lesa meira