Höndin var ein á lofti

Að þessu sinni langar mig að segja ykkur litla sögu um fyrrum skólabróður minn frá Háskólanum á Bifröst. Þegar við vorum þar við nám fyrir 30 árum var ég í hópi eldri nemenda en hann var nýstúdent, þ.e. rúmum áratug yngri. Þessi félagi minn var einkar talnaglöggur maður og átti sérlega auðvelt með stærðfræðihluta námsins. Eftir að skólagöngu hans lauk hefur hann verið í störfum sem fjármálstjóri tveggja stórfyrirtækja. Verið farsæll í starfi. En undir niðri hefur hjá honum blundað löngunin til að læra meira og helst þá um eitthvað þegar ný tækni kallar á breytingar. Nú um áramótin lét hann í góðu samráði við fjölskyldu sína slag standa. Eftir býsna kröfuhart umsóknarferli fékk hann inni í spænskum skóla í fremstu röð. Framundan er því stíft meistaranám í viðskiptafræði með áherslu á gagnagreiningu og tölfræði.

Þessi maður lét slag standa og fór hressilega út fyrir þægindarammann. Ég tek ofan fyrir slíku hugrekki, sem alls ekki er sjálfgefið, þegar menn eru í vel launaðri vinnu og eiga fyrir fjölskyldu að sjá. Um ástæðu þess að hann valdi þetta nám segir hann að það sé fyrst og fremst gríðarlegur áhugi á gagnavinnslu og gervigreind. „Við erum held ég smám saman að átta okkur á því að við erum að fara að upplifa meiri samfélags byltingu en mannskepnan hefur nokkru sinni upplifað,“ skrifar hann og bætir við að þetta sé hugsanlega stærra stökk en þegar rafmagnið var fundið upp á sínum tíma – og jafnvel eldurinn. „Lestin er farin af stað, annað hvort er að hoppa um borð eða horfa á hana bruna hjá,“ skrifar hann í pistli sem hann ritar til vina og vandamanna heima á Íslandi.

Eftir þrjá áratugi er þessi fimmtugi karl nú sestur á skólabekk að nýju, elstur í nemendahópnum. Á fyrstu dögum námsins var kennari sem var að fjalla um hvernig hægt er að nota gervigreindina til að nýta gögn frá samfélagsmiðlum í markaðsskyni. Kennarinn ákvað að gera óformlega könnun og henti fyrst fram spurningum um notkun samfélagsmiðla. Fyrst spurði hann hverjir væru á TikTok – og flestar hendur fóru á loft, utan Íslendingsins. Þegar spurt var hverjir væru á Instagram lét góður helmingur vita af veru sinni þar. Sjálfur var Íslendingurinn með Instagram reikning en notar hann þó ekki. Hverjir eru á Facebook spurði svo kennarinn. „Nú var minn heldur betur fljótur til aðgerða, enda nýbúinn að henda í langan status á þeim miðli, næstum staðinn á fætur líka. Það sem verra var að þetta reyndist vera eina hendin á lofti sem vakti kátínu meðal samnemenda minna. Reyndar bara mjög mikla kátínu, aðeins of mikla fannst mér! Mér til hinstu bjargar kom reyndar kennarinn sem reyndist líka vera á Facebook enda þroskaður maður á sextugsaldri. Gerðumst við því þegar vinir á Fésinu. Enginn annar í bekknum er vinur hans Juan Jose kennara á Facebook.“

Þó rúmur áratugur skilji mig og þennan fyrrum skólafélaga minn að í aldri, náði ég að tengja mjög vel við skrif hans. Fyrir það fyrsta dáist ég að því þegar fimmtugur karl tekur sig til eftir þriggja áratuga fjarveru frá námi, segir upp vel launaðri vinnu og flytur til Spánar til að mennta sig í gervigreind og notkun nýjustu tækni við stjórnun fyrirtækja. Þá tengi ég ekki síður við notkun hans á samfélagsmiðlum en við eigum það sameiginlegt að vera síðustu móhíkanarnir á þeim vettvangi. Hvorugur er á TikTok, Snapchat eða virkir á Instagram. Erum hins vegar á Facebook eins og annað síðmiðaldra og eldra fólk.

Ef tekið er mið af því að í bekk gamla félaga míns úti á Spáni er 25 manna hópur nemenda frá 15 löndum má segja að þar sé að finna einhvers konar þversnið af íbúum hins vestræna heims. Ungt fólk er einfaldlega horfið af Facebook. Það staðreyndi ég nýlega þegar ég þurfti að finna nöfn nokkurra ungra manneskja sem ég var að nafngreina á myndum sem ég hafði tekið. Þetta fólk var bara ekki þar, hefur aldrei stofnað Facebook reikning og er líklega ekki á leiðinni til þess. Mér finnst þetta athyglisvert ekki síst í ljósi þess að nú hefur meginþorri auglýsinga horfið úr hefðbundnum fjölmiðlum og yfir á streymisveitur og samfélagsmiðla, ekki síst Facebook. Þar með má segja að hinir meintu markaðssérfræðingar, sem unnið hafa að þessari tilfærslu, séu heimaskítsmát. Allar þeirra ráðleggingar komnar í skrúfuna og erfiðara en nokkru sinni fyrr að vita hvert á að beina auglýsingafé til að ná til landsmanna, á öllum aldri.

Magnús Magnússon