
Veröld
Veröld – Safn


Á vef Landsnets hf. sem er félag í 100% eigu íslenska ríkisins, er greint frá því að 52 umsækjendur hafi verið um starf forstjóra fyrirtækisins; 17 konur og 35 karlar. Þá segir einnig: „Í samráði við ráðgjafa á sviði mannauðsmála ákvað stjórn Landsnets að birta ekki nöfn umsækjenda. Er það gert með hagsmuni Landsnets í…Lesa meira

Á fyrsta sólarhring nýs árs kom upp eldur í að minnsta kosti þremur ruslagámum á Vesturlandi; Borgarnesi, Ólafsvík og Grundarfirði. Í einhverjum tilfellum kom upp eldur þar sem glóð reyndist í flugeldarusli sem fólk setti í ílátin. Talsvert tjón varð á öllum þremur gámunum og einu ruslagerði að auki.Lesa meira


Gleðilegt nýtt ár lesendur góðir og takk fyrir þau gömlu! Meðal fastra liða um áramót er að krýna Vestlending ársins. Tilnefningaferlið var hefðbundið og síðan unnið úr ábendingum. Niðurstaðan var sú að ungur bóndi vestur í Dölum hlýtur þessa nafnbót að þessu sinni og er vel að henni kominn. Mér hlotnaðist sá heiður að afhenda…Lesa meira


Um daginn sat ég við kaffiborð á dvalarheimili aldraðra norður í landi. Til að fitja upp á samræðum spurði ég heimilsfólkið um ilm aðventu og jóla: Hvað er í ykkar huga ilmur af aðventu og jólum? Ég vænti þess að fólk myndi til dæmis nefna ilm af rauðum eplum eða heitu súkkulaði, hreingerningarlykt eða bökunarilm.…Lesa meira

Það féll snjór í nótt. Reyndar ekki mikill, en þó nægur til að hylja jörð. Við þær aðstæður ljómar jörðin og litir jólaljósanna í húsunum allt í kring magnast upp og skapa enn hátíðlegri blæ. Snemma í morgun, á þriðja sunnudegi í aðventu, rölti ég í vinnuna. Allir dagar eru vinna á þessum tíma árs.…Lesa meira


Nafn? Jón Heiðarsson Starf og menntun? Verkstjóri í járnsmiðju Límtré Vírnet / Vélvirki. Hvað er uppáhalds verkfæramerkið þitt? Kraftverk. Hvað hlustar þú á í vinnunni? Mest á útvarpið og þá mest Bylgjuna. Hvaða drykk færðu þér á morgnana til að koma þér í gírinn? Kaffi. Hver er uppáhalds iðnaðarmaðurinn þinn utan þíns fyrirtækis? Úff, mjög…Lesa meira