Veröld

Veröld – Safn

true

Skinkuhorn – Guðný Vilhjálmsdóttir

Guðný Vilhjálmsdóttir er nýjasti viðmælandi Skinkuhorns, hlaðvarps Skessuhorns. Guðný er frá Helgavatni í Þverárhlíð, Borgarfirði. Hún er útskrifaður ferðamálafræðingur og starfar í dag sem verktaki í hinum ýmsu störfum. Hún hefur búið og starfað í Shanghæ og Hong Kong en í heildina hefur hún ferðast til 66 landa og er hvergi nærri hætt. Hún hafði…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Rúnar Gíslason

Borgnesingurinn Rúnar Gíslason er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsþáttarins Skinkuhorns. Hann starfar sem rannsóknarlögreglumaður í lögregluumdæmi Suðurnesja og fór yfir helstu þætti starfs síns í Skinkuhornsþætti vikunnar. ,,Þetta gerðist svolítið óvart. Þetta átti að vera sumarstarf en mig langaði að sækja um til að víkka sjóndeildarhringinn. Svo bara festist maður í þessu eins og gjarnan vill verða.…Lesa meira

true

Skinkuhornið hlaðvarp – Ævar Þór Benediktsson

Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson er fæddur og uppalinn á Stað í Borgarfirði. Ævar hefur skrifað 30 bækur en flestar eru þær ætlaðar börnum og unglingum. Þá er hann líklega einna þekktastur sem Ævar vísindamaður en í samnefndum sjónvarpsþáttum kynnti hann vísindi fyrir börnum við góðar undirtektir. Gunnlaug ræddi við Ævar um æskuna, ferilinn…Lesa meira

true

Syngja í Kallabakaríi – myndband

Eldri hópur kórs Grundaskóla söng nokkur lög í Kallabakaríi á Akranesi í dag en viðburðurinn var hluti af dagskrá Vökudaga. Hér syngur kórinn hið vinsæla lag Í larí leiLesa meira

true

Skinkuhornið hlaðvarp – Tinna Grímarsdóttir

Í þessum þætti ræðir Gunnlaug við Skagakonuna Tinnu Grímarsdóttur en hún greindist fyrir ári síðan með fjórða stigs krabbamein, þá 34 ára gömul. Tinna segir frá aðdraganda þess að hún greinist með krabbamein og lýsir því hvað fer í gang tilfinningalega og inni á spítalanum, þegar krabbamein er komið í ljós. Tinna hefur farið í…Lesa meira

true

Skinkuhornið hlaðvarp – Elsa María Guðlaugs- Drífudóttir

Í Skinkuhorninu þessa vikuna ræðir Gunnlaug við Skagakonuna Elsu Maríu Guðlaugs- Drífudóttir. Síðustu þrjú ár hefur Elsa sinnt stöðu fréttamanns RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum og verið með starfsstöð í Borgarnesi. Nú í haust færði hún sig hins vegar um set og sinnir nú starfi almenns fréttamanns á fréttastofu RÚV í Efstaleiti í Reykjavík. Hún segir…Lesa meira

true

Hljóðfæri Páls í Húsafelli notuð í spænskar verðlaunaþáttaraðir – myndband

Að Kolsstöðum í Hvítársíðu, þar sem áður stóð eyðibýli, stendur nú virt listamannasetur sem hefur þó hvergi verið auglýst í sinni starfstíð. Helgi Eiríksson, lýsingarhönnuður keypti bæinn Kolsstaði um síðustu aldamót og hefur síðan þá byggt upp vel sótta starfsstöð fyrir listafólk til að einbeita sér að verkum sínum í rólyndi og fallegri náttúru. Helgi…Lesa meira

true

Lilja Rannveig er fyrsti viðmælandi Skinkuhorns

Hlaðvarp Skessuhorns, Skinkuhornið, leit dagsins ljós í síðustu viku en í fyrsta þættinum fara þær Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir, blaðamenn Skessuhorns, yfir fyrirhugaðar breytingar á starfsemi Skessuhorns ásamt því að kynna sig sjálfar. Hlaðvarpið mun fara bakvið greiðsluvegg skessuhorns.is í lok október en munu nokkrir þættir vera öllum opnir til að byrja með…Lesa meira

true

Gömlu dansa ball í Tónbergi

Í síðustu viku var kennsla í Tónlistarskóla Akraness með óhefðbundnum hætti og nemendum boðið upp á ýmis námskeið í stað hefðbundinna tónlistartíma. Sum námskeiðanna voru einnig opin utan skólans. Var þetta fjörleg dagskrá og ýmsar áskoranir. Meðal annars var haldið opið gömlu dansa ball í Tónbergi, þar sem nemendur komu saman og léku á ýmis…Lesa meira

true

Hlaðvarpið Skinkuhorn – Kynningarþáttur

Þetta er fyrsti þáttur Skinkuhornsins, sem er hlaðvarp úr smiðju Skessuhorns. Þáttastjórnendur eru Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir. Skinkuhorn eru viðtalsþættir þar sem þáttastjórnendur leitast við að taka viðtöl við Vestlendinga, sem hafa frá einhverju skemmtilegu og/eða áhugaverðu að segja. Í þessum þætti kynna þáttastjórnendur sjálfa sig og þær breytingar sem verða munu á…Lesa meira