
Veröld
Veröld – Safn


Í Skessuhorni í þessari viku er meðal annars fjallað um tíu íbúðir sem reistar hafa verið í Stykkishólmi. Þessi hús eru byggð sem einingahús í verksmiðju erlendis, flutt hingað til lands í einingum og raðað saman á grunni. Byggingartíminn er skammur, enda á hann sér stað í útlöndum og húsin að mestu tilbúin þegar þau…Lesa meira

Tónlistarhátíðin Lilló Hardcore Festival verður haldin í fimmta sinn dagana 30. og 31. október næstkomandi, nú í keilusalnum við Vesturgötu á Akranesi. Hátíðin er hluti af Vökudögum og að venju verður boðið upp á fjölbreytta jaðartónlist þar sem harðkjarna tónlist, pönk og þungarokk verða í öndvegi. Guðjón Jósef Baldursson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, segir að að…Lesa meira


Á mánudaginn var með viðhöfn tekið á móti fyrstu farþegavélinni hingað til lands sem flogið var frá Kína með einni millilendingu í Danmörku. Flugtíminn er tæpar 16 klukkustundir. Flugfélagið heitir Air China og með hverri vél geta allt að 300 manns tekið sér far. Félagið áætlar að fljúga þrisvar í viku hingað til lands til…Lesa meira

Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar. Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis. Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM…Lesa meira


Á föstudaginn hefst hér um vestanvert landið veiðitímabil á rjúpu. Fimm daga vikunnar til 1. desember mega veiðimenn ganga til rjúpna. Þau skilyrði eru sett við veiðunum að ekki má selja bráðina, hvorki í verslanir né á öðrum markaði. Slíkar reglur gagnast lítið því ekkert eftirlit er með veiðunum. Því er engan veginn útilokað að…Lesa meira

Ljósmyndir af gömlum bifreiðum úr safnkosti Byggðasafns Dalamanna eru nú til sýnis í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Myndirnar eru allar svarthvítar og spanna tímabilið frá um 1935 til 1970. Þær veita áhugaverða innsýn í bílasögu fyrri tíma. Safnið leitar jafnframt til almennings eftir upplýsingum um bifreiðarnar, svo sem tegundir þeirra og sögu. Markmiðið er að…Lesa meira
