
Harðkjarnatónlist fær að óma á Vökudögum
Tónlistarhátíðin Lilló Hardcore Festival verður haldin í fimmta sinn dagana 30. og 31. október næstkomandi, nú í keilusalnum við Vesturgötu á Akranesi. Hátíðin er hluti af Vökudögum og að venju verður boðið upp á fjölbreytta jaðartónlist þar sem harðkjarna tónlist, pönk og þungarokk verða í öndvegi. Guðjón Jósef Baldursson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, segir að að baki viðburðinum standi öflugur hópur áhugafólks sem hafi um árabil unnið að því að efla jaðartónlist á Akranesi, meðal annars með tónleikahaldi og útgáfu tónlistar á kassettum. Guðjón er fæddur í Keflavík en flutti sex ára gamall á Akranes og ólst þar upp.
„Við höfum lagt áherslu á að koma alls kyns jaðartónlist á framfæri, einkum harðkjarna tónlist, pönki og þungarokki. Í gegnum tíðina höfum við líka boðið upp á annars konar jaðartónlist og jaðarpopp,“ segir Guðjón. Hátíðin hefur áður haft aðstöðu í gamla Landsbankahúsinu við Akratorg en vegna eigendaskipta á húsnæðinu þurfti að finna nýjan vettvang. Fyrir valinu varð keilusalurinn í kjallara íþróttahússins við Vesturgötu. „Þarna er ágætur salur sem hentar vel undir tónleika. Við ætlum að leggja mikla vinnu í að bæta hljóðvistina og tryggja að hljóðið verði sem best,“ segir Guðjón og bendir jafnframt á að tónlistin sé hávær og því geti verið skynsamlegt fyrir tónleikagesti að hafa eyrnatappa meðferðis.
Þekktar sveitir stíga á svið
Fjöldi hljómsveita kemur fram á hátíðinni og segir Guðjón að þar verði margar kanónur á ferðinni. Á föstudeginum má meðal annars nefna norsku sveitina Dødsdømt og harðkjarnasveitina Gavin Portland. Heimamenn í Gaddavír ríða á vaðið og hefja tónleikana klukkan 18.20. Á laugardeginum verður ekki síður mikið um dýrðir. Þar ber hæst endurkomu hinnar þekktu harðkjarnasveitar I Adapt, sem Guðjón segir hafa verið í fremstu röð íslensku harðkjarnasenunnar um aldamótin. Þá koma einnig fram pönksveitin Innvortis og Dr. Gunni, auk fleiri tónlistarmanna.
Dagskráin hefst upp úr klukkan 18 á föstudeginum en á laugardeginum er stefnt að því að hefja tónleikahaldið síðdegis, um klukkan 15–16. Auk tónlistarinnar verður ýmis varningur til sölu, meðal annars bolir og tónlistarútgáfur hljómsveitanna. Einnig er stefnt að sölu á samlokum líkt og undanfarin ár. Guðjón segir mikla tilhlökkun ríkja meðal skipuleggjenda og hvetur tónlistaráhugafólk til að mæta og kynna sér fjölbreytta flóru jaðartónlistar. „Við hlökkum bara til að sjá sem flesta. Þetta verða miklar kanónur sem koma fram og það er margt fleira í boði en það sem hér hefur verið talið upp,“ segir Guðjón Jósef Baldursson að lokum.