
Hús á faraldsfæti
Í Skessuhorni í þessari viku er meðal annars fjallað um tíu íbúðir sem reistar hafa verið í Stykkishólmi. Þessi hús eru byggð sem einingahús í verksmiðju erlendis, flutt hingað til lands í einingum og raðað saman á grunni. Byggingartíminn er skammur, enda á hann sér stað í útlöndum og húsin að mestu tilbúin þegar þau eru flutt til landsins og reist. Ég hygg að allir sem ekið hafa um þjóðvegi landsins kannist við að hafa mætt bílalestum með lögreglu í fararbroddi, þar sem flutningabílar koma með svona húseiningar, oft margir bílar í strollu. Við hönnun þessara húsa er beinlínis markmið að hver eining má ekki vera breiðari en svo að hún taki meira en aðra akreinina á mjóum vegum sem ganga undir nafninu þjóðvegir. Stakstæð slík einingahús verða gjarnan dáldið undarleg í laginu, afskaplega mjó og rengluleg og falla því illa að landslaginu.
Ekki eru mörg ár síðan innflutningur forsmíðaðra einingahúsa hófst. Líklega var það á þeim árum sem eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði var í sögulegu hámarki og skortur var bæði á eignaríbúðum og leiguhúsnæði. Þá voru reyndar vextir og lánakjör hagstæðari en undanfarin misseri og ár, enda eigum við þar Evrópumet. Sökum húsnæðisskorts voru það svo verkalýðsfélög sem á sínum tíma stóðu í fararbroddi fyrir stofnun íbúðafélaga þar sem markmiðið var að koma upp á mjög skömmum tíma miklum fjölda af ódýrum innfluttum leiguíbúðum.
Á þessum árum sem ég vitna til höfðu allir smiðir og aðrir iðnaðarmenn nóg að gera, höfðu ekki við að metta markaðinn af nýju íbúðarhúsnæði og bankarnir lánuðu upp í 90% kaupverðs. Á þessum árum var jafnframt samið um nokkuð ríflega launahækkanir á markaði, þannig að bilið milli launa hér á landi og t.d. í Lettlandi, þar sem einingahúsin voru byggð, jókst stórlega. Sömu verkalýðsfélög og sömdu um launahækkanir til íslenskra iðnaðarmanna voru á sama tíma að leggja grunn að innflutningi húsa sem byggð voru af láglauna iðnaðarmönnum t.d. í Lettlandi. Hundruðir ef ekki þúsundir íbúða voru byggðar með þessu móti og heilu skipsfarmarnir af stórum Legó kubba húsum komu á land.
Þrátt fyrir að nú séu verkefni iðnaðarmanna af skornum skammti höldum við áfram að mæta flutningabílalestunum með innfluttu einingahúsin. Í besta falli fá íslensku iðnaðarmennirnir vinnu við að slá upp sökklum undir húsin.
Auðvitað er það gott og gilt að markaðurinn bjóði hús af ólíku verðbili. Það er hins vegar trú mín að hús sem eru hönnuð hér á landi og byggð eftir ströngustu kröfum standast betur tímans tönn en þau innfluttu og því megi borga meira fyrir þau. Þó svo innflutningurinn standist lágmarks byggingarreglugerðir er ég fullviss um að íslenska smíðin er betri að gerð og endingu. Auk þess hlýtur það að vera markmið okkar að hlúa alltaf að íslenskri framleiðslu. Þar höfum við Íslendingar reyndar sofnað hressilega á verðinum. „Veljum íslenskt“ og „Verslum í heimabyggð“ eru slagorð sem fólk kýs að horfa framhjá, jafnvel skilur ekki hvað þau þýða. Slíkt á hreint ekki einungis við um vinnu íslenskra iðnaðarmanna.
Þeim þjóðum sem auðnast hefur að hlúa að eigin framleiðslu hefur almennt farnast best. Þjóðir sem aldrei hafa tapað skynseminni þótt viðskiptahindrunum fækki og frjálst flæði vöru og þjónustu hafi aukist. Okkur Íslendingum hefur hreinlega ekki gengið vel að verja störfin okkar. Það á ekki einungis við um iðnaðarmenn, get nefnt matvælaframleiðslu, fjölmiðlun, verslun og flutningastarfsemi sem nærtæk dæmi.
Ef fram fer sem horfir munu væntanlegir húseigendur einungis geta keypt forsmíðuð kubbahús frá útlöndum, hús sem mega alls ekki vera breiðari en ónýtu þjóðvegirnir sem margir hverjir rúma varla tvo bíla sem þurfa að mætast, án húsa. Ættum við ekki bara að staldra aðeins við og skoða hvort það sé ekki okkar hagur að byrja aftur að hlúa að íslenskri framleiðslu einkum þegar gæði og verð haldast í hendur.
Magnús Magnússon