
Veröld
Veröld – Safn


Síðastliðinn laugardag fór ég ásamt hópi fólks í bílferð um Snæfellsnes. Áherslan var lögð á sunnanvert nesið, lagt af stað að morgni og komið í myrkri í Ólafsvík. Þessi hópur var áhugaljósmyndarar sem fara reglulega einu sinni á ári í slíka ferð, gjarnan þegar haustlitir skarta sínu fegursta. Við vorum stálheppin með veður. Þótt rigningarbakkar…Lesa meira

Í nóvember verða 180 ár liðin frá því að Árni Thorlacius hóf samfelldar veðurfarsmælingar í Stykkishólmi sem hafa staðið óslitið síðan. Árni fæddist árið 1802 og varð umsvifamikill verslunar- og fræðimaður í Stykkishólmi eftir að hann kom heim úr námi frá Kaupmannahöfn. Þessar mælingar eru taldar meðal elstu samfelldu veðurmælinga í Evrópu og árið 2019…Lesa meira


Í heimi vaxandi samkeppni er það svo að ef eitthvað er of gott til að vera satt, er það líklega raunin. Almenningur ákveður að velja sér freistandi vörur á asískum verslanasíðum en þegar það móttekur vörurnar standast þær ekki væntingar. Flagð er því undir fögru skinni í því eins og öðru. Auðvitað er það svo…Lesa meira

Tökur á sjónvarpsseríu byggðri á bók Evu Bjargar Ægisdóttur; Marrið í Stiganum, hefjast á Akranesi í byrjun október og er ráðgert að þær standi yfir næstu þrjá mánuði. Þáttaserían verður alls sex þættir og er framleidd af Glassriver (glassriver.is) en þættirnir verða sýndir í Sjónvarpi Símans næsta haust. Þættirnir munu bera nafnið Elma eftir aðalsöguhetju…Lesa meira


Ég fór í Þverárrétt á sunnudaginn. Svo sem ekki í frásögu færandi þótt fjárlaus sé í öllum skilningi þess orðs. En er svo stálheppinn að tengdamóðir mín á enn nokkrar kindur og þær þarf jú að sækja í réttina. Fyrri leit hafði reyndar gengið bölvanlega á Holtavörðuheiði. Þoka torveldaði smalamennsku í það skiptið svo að…Lesa meira

Gjóður er miðlungsstór ránfugl sem finnst víða um heim en er fremur sjaldséður flækningur hér á landi. Hann hefur þó sést í tæplega fjörutíu skipti áður hér við land. Einn gjóður hefur síðustu daga verið á silungsveiðum á tjörnunum við rætur Akrafjalls og fiskað vel. Það spurðist hratt út í hópi fuglaljósmyndara um veru fuglsins…Lesa meira
