Íþróttir

true

Skallagrímur marði sigur á Snæfelli í tvíframlengdum Vesturlandsslag

Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Fyrir leikinn höfðu Skallagrímsmenn unnið tvo leiki í deildinni en Snæfell var án sigurs. Liðin hafa marga hildina háð í gegnum tíðina og leikurinn í gær var engin undantekning þar á. Eftir að Skallagrímur hafði haft yfirhöndina í fyrri hálfleik og…Lesa meira

true

Hásinin er öll að koma til hjá fyrirliðanum

Ármann Smári Björnsson, fyrirliði knattspyrnuliðs ÍA, missti af síðustu þremur leikjum sumarsins eftir að hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í leik gegn KR í 19. umferð Pepsi deildar karla. Ármann, sem er 35 ára gamall, hefur verið einn af lykilmönnum ÍA undanfarin ár eða allt síðan hann sneri heim úr atvinnumennsku árið…Lesa meira

true

Skallagrímskonur ósigraðar á heimavelli

Skallagrímskonur hafa farið vel af stað í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í vetur og oft leikið afar vel, ekki síst á heimavelli. Fjósið er að verða mikið heimavígi og fengu leikmenn Stjörnunnar að kynnast því þegar liðin mættust í Borgarnesi á laugardaginn. Skallagrímur hafði yfirhöndina nær allan leikinn og vann að lokum góðan sigur, 75-63.…Lesa meira

true

Grundarfjörður sigraði ÍR-b

Körfuknattleikslið Grundarfjarðar tók á móti b-liði ÍR í íþróttahúsi Grundarfjarðar laugardaginn 12. nóvember. Grundfirðingar spiluðu í hvítum búningum í þessum leik og þurftu að lána gestunum svörtu búningana sína þar sem að þeir voru í búningavandræðum. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu góðri forystu eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bitu aðeins frá sér þegar…Lesa meira

true

Snæfell valtaði yfir Njarðvík

Íslandsmeistarar Snæfells mættu liði Njarðvíkur í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikið var suður með sjó og höfðu Snæfellskonur stórsigur, 38-69. Mikilvæga leikmenn vantaði í bæði lið. Njarðvíkingar voru án Carmen Tyson-Thomas og fyrirliði Snæfells, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gat ekki leikið með sínu liði vegna höfuðhöggs sem hún varð fyrir í leiknum gegn Skallagrími. Hins vegar reimaði…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu gegn Breiðabliki

ÍA heimsótti Breiðablik í 1. deild karla í körfuknattleik að kvöldi síðasta föstudags. Leikurinn var jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir það tóku heimamenn öll völd á vellinum og unnu að lokum mjög stóran sigur, 102-62. Skagamenn höfðu raunar yfirhöndina í upphafsfjórðungnum. Leiddu að jafnaði með nokkrum stigum þar til undir lok leikhlutans þegar…Lesa meira

true

Snæfell sá aldrei til sólar gegn Tindastóli

Botnlið Snæfells ferðaðist norður á Sauðárkrók í gær og mætti liði Tindastóls í sjöttu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Ungt lið Snæfells hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er vetri og að lokum fór svo að Tindastóll vann stórsigur, 100-57. Í stuttu máli sáu Snæfellingar aldrei til sólar í leiknum. Heimamenn tóku öll…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Keflavík

Leikið var í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Í Borgarnesi tóku Skallagrímsmenn á móti Keflvíkingum og unnu mikinn baráttusigur eftir spennandi lokafjórðung, 80-71. Skallagrímsmenn náðu heldur yfirhöndinni í leiknum snemma í fyrsta leikhluta en Keflvíkingar fylgdu þeim eins og skugginn og aðeins munaði stigi þegar leikhlutinn var úti. Þeir hófu annan fjórðung af…Lesa meira

true

Snæfell náði fram hefndum

Í gærkvöldi tók Snæfell á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í Borgarnesi í fyrsta leik vetrarins og þá höfðu Skallagrímskonur betur, 73-62. Annað var uppi á teningnum í Stykkishólmi í gær, því Íslandsmeistarar Snæfells náðu fram hefndum og sigruðu með 72 stigum gegn 57. Snæfellskonur byrjuðu mun betur í…Lesa meira

true

„Eigum að stefna að því að verða númer eitt á landinu“

„Ég hef alltaf verið knattspyrnulega þenkjandi og þegar ég var ung kom aldrei til greina að æfa neina aðra íþrótt en fótbolta,“ segir Hulda Birna Baldursdóttir í samtali við Skessuhorn. Hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA 1. nóvember síðastliðinn af Haraldi Ingólfssyni, sem hafði gegnt starfinu undanfarin þrjú ár. „Ég er Skagamaður, fædd og…Lesa meira