Íþróttir

true

Skagamenn með annan fótinn í efstu deild

Það var mikið undir hjá báðum liðum á Akranesvelli þegar Skagamenn tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík í Inkasso-deildinni fyrr í dag. Með sigri Skagamanna gátu þeir tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni á næsta tímabili og um leið eyðilagt vonir Víkinga að komast upp. Sigur Ólsara hefði hins vegar þýtt að Víkingur kæmist aftur í…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur á morgun

ÍA og Víkingur Ó. mætast á Akranesvelli í Vesturlandsslag í 1. deild karla í knattspyrnu á morgun. Leikurinn er jafnframt stórleikur 20. umferðar deildarinnar. Fyrir leikinn hafa Skagamenn 43 stig í toppsæti deildarinnar en Ólafsvíkingar 38 í þriðja sætinu. Á milli þeirra er HK með 42 stig. Skagamenn fara langt með að tryggja sér sæti…Lesa meira

true

Náði sér ekki á strik á fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, átti erfitt uppdráttar á fyrsta hringum á Lacoste Open mótinu sem hófst í Frakkland í gær. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Hún kom í hús á sjö höggum yfir pari í gærkvöldi og situr í 105. sæti mótsins. Valdís fann aldrei taktinn í gær. Hún fékk einn…Lesa meira

true

Stefán Gísli bikarmeistari í haglabyssuskotfimi annað árið í röð

Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness varð um helgina bikarmeistari í haglabyssuskotfimi (Skeet) annað árið í röð. Hann tryggði sér titilinn með sigri á síðasta móti mótaraðarinnar, sem haldið var í Álfsnesi á svæði Skotfélags Reykjavíkur. Fékk hann 58 stig af 60 mögulegum í mótunum fjórum. Stefán hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu.…Lesa meira

true

Skallagrímur í undanúrslit

Skallagrímur og Ýmir skildu jöfn, 4-4, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu í gær. Skallagrímur sigraði 5-2 í fyrri leik liðanna í Borgarnesi sl. laugardag. Leikurinn í gær var mjög kaflaskiptur, heimamenn í Ými skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins áður en Borgnesingar skoruðu öll sín mörk síðasta…Lesa meira

true

Vesturlandsmót kvenna í golfi haldið í Borgarnesi

Kvenkylfingar úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi sigruðu í sveitakeppni Vesturlandsmóts kvenna í golfi sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Þátttökurétt áttu konur úr klúbbum af Vesturlandi; Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi, Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði og Golfklúbbi Borgarness, sem var að þessu sinni gestgjafi á mótinu. Vesturlandsmót kvenna er…Lesa meira

true

Skagakonur völtuðu yfir Sindra

ÍA heimsótti Sindra á Hornarfjörð í 16. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn var ÍA í þriðja sæti en Sindri á botninum. Sást það glöggt á gangi leiksins, því Skagakonur höfðu algera yfirburði frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum stórt, 6-0. Leikurinn byrjaði með látum þegar Sigrún Eva Sigurðardóttir skoraði…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu í fjörugum leik

ÍA sigraði botnlið Magna, 3-2, í líflegum baráttuleik norður á Grenivík á laugardag. Leikurinn fór heldur betur fjörlega af stað. Eftir örfáar mínútur átti Stefán Teitur Þórðarson stangarskot og stuttu síðar var hann búinn að koma ÍA yfir. Góðri sókn Skagamanna lauk með skoti sem var varið út í teiginn. Þar var Stefán Teitur fyrstur…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar geta enn komist upp

Víkingur Ó. heldur henn í vonina um að komast upp í efstu deild karla í knattspyrnu eftir verðskuldaðan 2-0 sigur á á Þór í toppslag 1. deildar karla í gær. Heimamenn í Ólafsvík voru mun sterkari í upphafi leiks, þeir sóttu nokkuð stíft en gestirnir vörðust. Á 23. mínútu var brotið á Sasha Litwin innan…Lesa meira

true

Arnór Sigurðsson til CSKA Moskva

Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson frá Akranesi gekk í dag í raðir rússneska stórveldisins CSKA Moskva frá sænska liðinu IFK Norrköping. Kaupverðið er talið vera um fjórar milljónir evra, sem samsvarar um það bil 500 milljónum íslenskra króna. Samningaviðræður hafa staðið yfir í tvær vikur, eða allt frá 16. ágúst þegar rússneska liðið gerði fyrst tilboð í…Lesa meira