Íþróttir

true

Spennan eykst á toppi 1. deildar karla

ÍA og HK gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í toppslag 1. deildar karla í knattspyrnu á Akranesvelli nú í kvöld. Leikurinn var heilt yfir hálf bragðdaufur en Skagamenn hefðu hæglega getað sótt sigur því þeir misnotuðu tvær vítaspyrnur í leiknum. Fyrst var það Jeppe Hansen sem fór á vítapunktinn á lokamínútu fyrri hálfleiks. Hann…Lesa meira

true

Góð vörn skóp sigur ÍA stúlkna

Skagastelpur náðu sér í dýrmæt þrjú stig þegar þær unnu Fylki í 15. umferð Inkassodeildar í Akraneshöllinni í gær. Með sigrinum bætir ÍA stöðu sína í efri hluta deildarinnar og á enn möguleika á að komast upp um deild nú þegar þrír leikir eru eftir af tímabilinu. Heimastúlkur komu ákveðnar til leiks og settu tóninn…Lesa meira

true

Toppslagur á Akranesvelli klukkan 18

ÍA og HK mætast í toppslag 1. deildarkarla í knattspyrnu á Akranesvelli í kvöld. Skagamenn tróna á toppi deildarinanr með 39 stig en HK hefur stigi minna í öðru sæti. Þar fyrir neðan er Þór Ak með 33 stig og síðan Þróttur R og Víkingur Ó. með 32 stig hvort lið. Fimm umferðir eru eftir…Lesa meira

true

Angelika Kowalska til Snæfells

Pólska körfuknattleikskonan Angelika Kowalska hefur samið við Snæfell um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Frá þessu var greint á heimasíðu félagsins. Angelika er 26 ára og leikur stöðu framherja. Hún á að baki leiki fyrir U16, U18 og U20 ára landslið Póllands, auk þess að hafa leikið nokkur tímabil…Lesa meira

true

Gestirnir komu til baka og stálu sigrinum

Kári varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu í gær, þegar liðið tapaði heima gegn Aftureldingu, 3-2. Káramenn voru sterkari framan af fyrri hálfleik og höfðu tveggja marka forystu eftir 20 mínútna leik. Alexander Már Þorláksson kom Kára yfir á 14. mínútu og Ragnar Már Lárusson bættu öðru marki við sex…Lesa meira

true

Snæfell/UDN missti af sæti í umspili

Lið Snæfells/UDN kemst ekki í úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu eftir 4-2 tap á útivelli gegn toppliði Ýmis í lokaumferð A riðils í gærkvöldi. Snæfellingar fengu óskabyrjun þegar Almantas Vansevicius kom þeim yfir strax á 3. mínútu. Hörður magnússon jafnaði metin fyrir Ými á 10. mínútu en Julio Fernandez De La Rosa skoraði á…Lesa meira

true

Fyrsta tapið á nýja gervigrasinu

Víkingur Ó. mátti sætta sig við 4-3 dramatískt tap gegn Þrótti R. leik í gærkvöldi. Var þetta fyrsta tap Víkings á nýja gervigrasinu á Ólafsvíkurvelli. Gestirnir byrjuðu betur, sýndu prýðilega sóknartilburði og voru líklegri til að skora í upphafi leiks. Það var því gegn gangi leiksins þegar heimamenn komust yfir á 20. mínútu. Sasha Litwin…Lesa meira

true

Jermelle Fraser verður spilandi þjálfari ÍA

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur samið við Bandaríkjamanninn Jermelle Fraser um að taka að sér að leika með og þjálfa lið Skagamanna í 1. deild karla í körfuknattleik næsta vetur. Greint var frá þessu á Facebook-síðu körfuknattleiksfélagsins síðastliðinn miðvikudag. Jermelle er 31 árs gamall og leikur stöðu bakvarðar. Hann býr yfir töluverðri reynslu bæði sem leikmaður og…Lesa meira

true

Fimm sigrar í röð hjá ÍA

Skagamenn unnu góðan útisigur á liði ÍR, 2-0, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardag. Var þetta fimmti sigurleikur ÍA í röð. Leikurinn var fremur tíðindalítill fyrst um sinn. Skagamenn voru sterkari og sýndu á köflum prýðilega sóknartilburði. Þeim tókst að skapa sér nokkur ágætis marktækifæri en þau fóru öll forgörðum.…Lesa meira

true

Ótrúleg dramatík í undanúrslitum Mjólkurbikarsins

Víkingur Ó. úr leik eftir vítaspyrnukeppni Liðsmenn Víkings Ó. máttu játa sig sigraða gegn Breiðabliki í ótrúlegum undanúrslitaleik Mjólkurbikars karla í gærkvöldi. Blikar náðu að jafna á lokasekúndum framlengingar og sigruðu síðan í vítaspyrnukeppni. Frá fyrstu mínútu var ljóst að um hörkuleik yrði að ræða. Breiðablik var mun meira með boltann en Ólafsvíkingar vörðust vel…Lesa meira