Íþróttir

true

Tóku þátt í Reykjavíkurleikunum í karate

Fimm keppendur frá Karatefélagi Akraness tóku þátt í Reykjavíkurleikunum,  WOW Reykjavik International Games 2017, sunnudaginn 29. janúar. Stóðu þau sig öll með prýði. Á meðfylgjandi mynd er Kristrún Bára Guðjónsdóttir lengst til hægri, en hún varð í 3. sæti í sinum aldursflokki í kata.Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells á Stjörnunni

Snæfell mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Garðabænum og skemmst er frá því að segja að Snæfell réði ferðinni frá upphafi til enda og sigraði að lokum örugglega, 54-71. Snæfell lék í leiknum með sorgarbönd á búningnum í minningu um Birgi Pétursson, ungan manns úr Stykkishólmi sem lést…Lesa meira

true

Áttundi sigur Skallagríms í röð

Skallagrímur mætti Haukum í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Hafnarfirði og þar kræktu Skallagrímskonur í áttunda sigurleikinn í röð þegar þær lögðu Hauka 55-61. Eru þær nú ósigraðar síðan í byrjun desembermánaðar og tróna á toppi deildarinnar. Skallagrímsliðið var heldur sterkara í upphafi leiks en Haukar náðu góðum…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin hefst á föstudaginn

Fyrsta mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi föstudagskvöldið 3. febrúar. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið, sem etja kappi í sex greinum hestaíþrótta á fimm kvöldum nú í febrúar og mars. Húsið verður opnað klukkan 18.00 og hefst dagskrá með setningu kl. 18.30.…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn valinn í landsliðið

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti á þriðjudag um þá leikmenn sem skipa landsliðshóp karlalandsliðs Íslands sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik í Las Vegas miðvikudaginn 8. febrúar næstkomandi. Hópurinn ferðast út á sunnudaginn en í honum eru sjö leikmenn sem ekki hafa leikið áður með landsliðinu. Þar á meðal er Tryggvi Hrafn Haraldsson, tvítugur leikmaður ÍA. Hann…Lesa meira

true

Á sjötta tug bætinga sundfólks af Akranesi

Um síðustu helgi syntu ellefu sundmenn frá Sundfélagi Akraness á alþjóðlegu sundmóti í Reykjavík, RIG, en þetta var fyrsta mótið í langan tíma sem fólkið keppti í 50m laug. „Sundfólkinu okkar gekk vel á mótinu og voru 54 bætingar yfir helgina ásamt því að mörg þeirra náðu inn í úrslitasund. Sundmenn komu víðsvegar frá svo…Lesa meira

true

UDN og Snæfell hefja samstarf í knattspyrnu

Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga og Snæfell hafa gert samstarfssamning um meistaraflokk karla í knattspyrnu. Sameiginlegt lið félaganna mun taka þátt í Lengjubikarnum þar sem liðið er í riðli með Álftanesi, Árborg, Mídasi, Stál-Úlfi og Ými. Fyrsti leikurinn verður gegn Mídasi í Akraneshöllinni föstudaginn 10. mars næstkomandi. Einnig mun sameiginlegt lið UDN og Snæfells taka þátt…Lesa meira

true

Snæfell stakk af í lokafjórðungnum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Þessa dagana heyja liðin sínar orrustur á sitthvorum enda deildarinnar, Snæfell við toppinn en Haukar við botninn. Úrslit leiksins bera nokkurn keim af stöðu liðanna í deildinni því Snæfell vann stóran sigur, 73-49. Snæfell byrjaði af miklum krafti en gestirnir komust hvorki…Lesa meira

true

Skallagrímskonur tylltu sér á toppinn

Skallagrímur tók á móti Keflavík í stórleik 18. umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik á laugardag. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum á toppi deildarinnar, Keflavík í 1. sæti en Skallagrímur í 2. sæti. Fyrirfram var búist við hörkuleik og sú varð einmitt raunin. Að lokum fór svo að Skallagrímskonur sigruðu með tveimur stigum…Lesa meira

true

Skagasigur eftir spennandi síðari hálfleik

ÍA mætti liði FSu í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Selfossi. Eftir góðan fyrri hálfleik Skagamanna komust heimamenn inn í leikinn í þriðja leikhluta og hleypa spennu í leikinn. Skagamenn höfðu þó betur eftir spennandi lokafjórðung, 65-70 og kræktu í fimmta sigur sinn í deildinni. Mikið jafnræði var með liðunum…Lesa meira