
Sjónarhóll Trail Run verður haldið í fyrsta sinn á Hellissandi laugardaginn 8. ágúst. Að hlaupinu standa Ari Bent Ómarsson og Helga Jóhannsdóttir fyrir hönd Hlaupahóps Snæfellsbæjar, en þau hafa undanfarna mánuði unnið að undirbúningi þessa nýja utanvega hlaups. Hlaupið hefst við Útgerðina á Hellissandi klukkan 12 og liggur 21 kílómetra leið um Prestahraun og Eysteinsdalsleið…Lesa meira








