
ReyCup A lið. Ljósm. Gísli Karlsson
Þriðji flokkur ÍA er ReyCup meistarar 2026
Knattspyrnufélag ÍA sendi þrjú lið í 3. flokki á ReyCup, knattspyrnumót sem haldið er í Laugardalnum í Reykjavík. Spiluðu tvö lið A og B til úrslita, unnu sína leiki og urðu ReyCup meistarar. A liðið vann Val 1-0 í úrslitaleik á Laugardalsvelli og B liðið vann HK 2-1 í úrslitaleik á aðalvelli Þróttar. Þjálfarar liðanna eru þeir Elínbergur Sveinsson, Sigurður Jónsson og Hafþór Pétursson.
