Íþróttir

true

Skallagrímskonur lágu gegn Haukum

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Haukum, 84-63, í síðasta leik Domino‘s deildar kvenna fyrir jólafrí. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardag. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og liðin skiptust á að skora. Skallagrímur leiddi með einu stigi þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður en eftir það komust Haukakonur í gírinn.…Lesa meira

true

Skallagrímur á toppnum um jólin

Skallagrímur og ÍA mættust í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á fimmtudagskvöld. Leikið var í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og sigruðu örugglega, 127-96. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Skallagrímur hafði þó heldur undirtökin. Eftir því sem leið…Lesa meira

true

Sjö Vestlendingar í úrvalshópi í hópfimleikum

Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið úrtakshóp vegna Evrópumótsins í hópfimleikum sem fram fer á næsta ári. Um 200 iðkendur mættu á fyrstu úrtaksæfingu landsliðsins og alls voru hundrað iðkendur frá átta félögum valdir í fyrsta úrvalshópinn. Þrjár stúlkur úr Fimleikafélagi Akraness voru valdar í úrvalshóp stúlkna. Það eru þær Guðný Sigurrós Jóhannsdóttir,…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir toppliði Vals

Snæfell mátti sætta sig við tap, 88-73, þegar liðið heimsótti topplið Vals í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínúturnar en snemma leiks náðu Valskonur yfirhöndinni. Snæfell var þó ekki langt undan og voru aðeins fjórum stigum á eftir Val eftir fyrsta leikhluta, 21-17. Snæfellskonur stigu á bensínið…Lesa meira

true

Gestirnir skelltu í lás í fjórða leikhluta

Skallagrímur mátti sætta sig við tap á heimavelli gegn Stjörnunni, 81-91, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi en gestirnir skelltu í lás í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn. Stjarnan hafði undirtökin stærstan hluta upphafsfjórðungsins og leiddi með átta stigum um hann miðjan, 7-15. Þá tóku Skallagrímskonur að…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin gætu mæst í úrslitum

Dregið var í undanúrslitum Maltbikars kvenna og karla í körfuknattleik nú í hádeginu. Drátturinn fór fram í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar, sem er aðalstyrktaraðili keppninnar. Í bikarkeppni kvenna voru tvö Vesturlandslið í pottinum, Snæfell og Skallagrímur, en þau mættust einmitt í undanúrslitum síðasta vetur. Undanúrslitarleikir kvenna fara að þessu sinni fram í Laugardalshöll fimmtudaginn 11. janúar kl.…Lesa meira

true

Bæði Vesturlandsliðin í undanúrslit

Leikið var í átta liða úrslitum Maltbikars kvenna í körfuknattleik í gær. Skallagrímur valtaði yfir 1. deildar lið ÍR í Borgarnesi, 92-47, en Snæfell lagði Val í æsispennandi og dramatískum leik í Stykkishólmi, 75-73. Bæði Skallagrímur og Snæfell hafa þar með tryggt sér farseðilinn í Laugardalshöllina, þar sem undanúrslitin fara fram. Dregið verður í undanúrslitum…Lesa meira

true

Snæfell missti sigurinn úr greipum sér

Snæfellingar máttu sætta sig við tap gegn Hamri, 105-99, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Snæfell hafði undirtökin stærstan hluta leiksins en heimamenn náðu forystunni í fjórða leikhluta og tókst að halda henni til leiksloka. Snæfell byrjaði leikinn betur og hafði sex stiga forystu eftir nokkurra mínútna leik, 8-14.  Heimamenn…Lesa meira

true

Andlausir Skagamenn lágu fyrir Gnúpverjum

ÍA tók á móti Gnúpverjum í 1. deild karla í körfuknattleik að kvöldi föstudags. Skemmst er frá því að segja að Skagamenn virkuðu hálf andlausir í leiknum og það kann ekki góðri lukku að stýra. Gnúpverjar stjórnuðu frá upphafi til enda og unnu stórt, 76-100. Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en eftir þriggja mínútna leik komst…Lesa meira

true

Haukar lögðu heimamenn í Grundarfirði

Grundarfjörður tók á móti C liði Hauka í íþróttahúsi Grundarfjarðar á miðvikudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum til að byrja með og munaði einungis einu stigi eftir fyrsta leikhluta en þá var staðan 19-20 Haukum í vil. Gestirnir mættu grimmir í annan leikhluta og unnu hann með tíu stigum og staðan því 34-45 í hálfleik. Haukarnir…Lesa meira