Íþróttir

true

Snæfell lá gegn Stjörnunni

Snæfell tapaði fyrir Stjörnunni, 75-53, í fremur ójöfnum leik þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Garðabænum og Snæfellskonur mættu fáliðaðar til leiks, með aðeins átta leikmenn á skýrslu. Það skipti engu í upphafi leiks. Snæfell hafði heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta, leiddi í byrjun leiks áður…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar, 73-87, þegar þær tóku á móti Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna í gær. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, liðin skiptust á að skora og að leiða. Leikurinn var hraður og bæði lið léku vel. Keflavík leiddi með þremur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 19-22.…Lesa meira

true

Vestri/Skallagrímur í undanúrslit tíunda flokks

Sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra í körfubolta lagði Íslandsmeistara KR að velli í hörku leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í DHL höllinni 3. desember sl. Leikurinn endaði 53-60. Drengirnir úr Vestra/Skallagrími spiluðu glimrandi körfubolta. Náðu þeir að mynda gott flæði sín á milli og endurspegluðu góða liðsheild. Þrátt fyrir það var það fyrst og…Lesa meira

true

ÍA semur við efnilegan leikmann

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert samning við hinn unga og efnilega Bjarka Stein Bjarkason um að leika með liðinu næstu tvö árin, eða út leiktímabilið 2019. Bjarki er fæddur árið 2000 og er uppalinn hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Hann spilaði tíu leiki með liðinu í 2. deild karla síðasta sumar og skoraði í þeim tvö mörk.…Lesa meira

true

Einar Örn bikarmeistari í kraftlyftingum

Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness hampaði sigri á Bikarmótinu í Kraftlyftingum sem haldið var á Akureyri laugardaginn 25. nóvember síðastliðinn. Einar keppti og sigraði í 105 kg flokki. Hann lyfti 345 kg í hnébeygju í fyrstu tilraun og gerði síðan atlögu að nýju Íslandsmeti, 357,5 kg en mistókst í tvígang. Sömu sögu var að…Lesa meira

true

Snæfell vann öruggan sigur á Fjölni

Snæfell vann góðan sigur á Fjölni, 100-85, þegar liði mættust í Stykkishólmi í gær. Snæfell hafði undirtökin nánast frá fyrstu mínútu og sigraði að lokum örugglega. Snæfellingar byrjuðu betur, komust í 21-10 strax um miðjan upphafsfjórðunginn en gestirnir náðu þó að minnka muninnn í fimm stig áður en leikhlutinn var úti, 29-24. Annar fjórðungur fór…Lesa meira

true

Skagamenn enn án stiga

Skagamen fóru suður í Hveragerði og mættu Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir nokkuð jafnan en kaflaskiptan leik varð ÍA að lokum að sætta sig við tap, 95-88. Hvergerðingar höfðu undirtökin í upphafsfjórðungnum og skoruðu mikið en Skagamenn reyndu eftir fremsta megni að halda í við þá. Hamar leiddi að fyrsta…Lesa meira

true

Misstu af sigrinum í síðari hálfleik

Eftir góðan útisigur á Fjölni, 98-101 í spennandi leik síðastliðinn föstudag, tók Skallagrímur á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók Hamarsliðið öll völd á vellinum í þeim síðari og sigraði örugglega, 82-104. Skallagrímsmenn höfðu heldur undirtökin í fyrsta leikhluta, komust í 12-4 snemma leiks og héldu…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímur varð að lúta í lægra haldi gegn Breiðabliki, 84-68, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á föstudag. Skallagrímur lék án landsliðskonunnar Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur, sem fór úr axlarlið í leik gegn Val á miðvikudag. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Breiðablik náði undirtökunum eftir því sem leið á fyrsta…Lesa meira

true

Fjórir fulltrúar frá Akranesi á NM í sundi

Sundfélag Akranes átti þrjá sundmenn í íslenska landsliðinu sem keppti á Norðurlandameistarmóti sem fram fór um helgina í Laugardalslauginni. Það voru þau Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir. Alls tóku 193 sundmenn frá níu löndum þá á mótinu. Auk þess var Skagakonan Inga Elín Cryer, sem æfir og keppir með Ægi, í landsliðinu.…Lesa meira