Íþróttir

true

„Planið er að fara beint upp aftur“

Skallagrímur háði harða fallbaráttu í Domino‘s deild karla síðasta vor, en svo fór að lokum að liðið féll eftir tap í næstsíðasta leik tímabilsins. Leikur Skallagrímur því í 1. deild í vetur. „Planið er að fara beint upp aftur. Ég tel það vera raunhæft markmið og við erum brattir,“ segir Finnur Jónsson, þjálfari karlaliðs Skallagríms,…Lesa meira

true

Carmen með risaleik í sigri Skallagríms

Skallagrímur byrjaði keppnistímabilið á sigri þegar liðið lagði Njarðvík á útivelli, 66-84, í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Upphafsfjórðungurinn var nokkuð jafn framan af en Skallagrímskonur höfðu þó heldur yfirhöndina og leiddu að honum loknum, 18-26. Þær höfðu áfram stjórnina í öðrum leikhluta og juku forskot sitt. Mest leiddu þær með 14 stigum…Lesa meira

true

Keflavík sigraði í Hólminum

Fyrsta umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik var leikin í gærkvöldi. Í Stykkishólmi mættust Snæfell og Keflavíl, liðin sem áttust við í úrslitaviðureign Íslandsmótsins síðasta vor. Að lokum fór svo að Íslandsmeistarar Keflavíkur höfðu betur, 63-77. Mikið jafnfræði var með liðunum í fyrsta leikhluta. Þau fylgdust að í öllum sínum aðgerðum og aldrei munaði meira…Lesa meira

true

Þjálfari Skallagríms setur markið hátt

Spánverjinn Ricardo Gonzalez Dávila tók við þjálfun kvennaliðs Skallagríms á liðnu sumri. Hann er fluttur í Borgarnes ásamt fjölskyldu sinni og segir þau una hag sínum vel í bænum. „Ég og fjölskyldan mín erum ánægð í Borgarnesi. Fólkið er mjög almennilegt og hjálplegt í einu og öllu,“ segir Ricardo í samtali við Skessuhorn. Æfingar Skallagríms…Lesa meira

true

Markmiðið að komast í úrslitakeppnina

„Veturinn leggst bara vel í mig,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, í samtali við Skessuhorn. Kvennalið Snæfells leikur í Domino‘s deildinni á komandi vetur. Liðið var deildarmeistari á síðasta keppnistímabili og komst alla leið í úrslitaviðureignina um Íslandsmeistaratitilinn en varð að játa sig sigrað gegn Keflavík í fjórum leikjum. En lið Snæfells hefur tekið…Lesa meira

true

Keflavík er meistari meistaranna

Skallagrímur mætti Keflavík þegar leikið var um meistara meistaranna í körfuknattleik kvenna í gær. Leikurinn fór fram í Keflavík. Heimaliðið vann tvöfalt á síðasta tímabili en Skallagrímur hlaut silfurverðlaun í bikarkeppninni. Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur höfðu undirtökin í leiknum frá því snemma í fyrsta leikhluta. Heimakonur slökuðu hvergi á og héldu Skallagrímskonum í skefjum allan…Lesa meira

true

Víkingur Ó. samferða ÍA niður

Lokaumferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu fór fram á laugardag. Á Akranesi mættust ÍA og Víkingur Ó. í leik þar sem Ólafsvíkingar höfðu allt að vinna en engu að tapa. Þeir þurtu á sigri að halda til að bjarga sér frá falli, en um leið að treysta á að ÍBV sigraði ekki KA í Vestmannaeyjum.…Lesa meira

true

Brynjar Snær til ÍA

Í dag skrifaði Knattspyrnufélag ÍA undir samning við ungan og efnilegan leikmann, Brynjar Snæ Pálsson. Brynjar er fæddur árið 2001 og leikur stöðu miðjumanns og vinstri bakvarðar. Hann hefur allan sinn feril leikið með Skallagrími og á tólf leiki að baki með meistaraflokki félagsins. Fyrsta meistaraflokksleikinn fyrir Skallagrím lék hann í 4. deild karla sumarið…Lesa meira

true

ÍA og Skallagrímur hefja samstarf í yngri flokkum

Í dag var undirritaður samningur milli Knattspyrnufélags ÍA og Knattspyrnudeildar Skallagríms um samstarf yngri flokka félaganna. Samningurinn felur í sér að liðin munu senda sameiginleg keppnislið til keppni í Íslandsmóti og bikarkeppni 4. flokks kvenna, 3. flokks kvenna og 3. flokks karla keppnistímabilið 2017 til 2018.  Lesa meira

true

Dregið í Maltbikarnum

Dregið var í 32 liða úrslitum Maltbikars karla í körfuknattleik í gær. Alls voru 34 lið skráð til leiks og því var dregið í forkeppni samhliða. Þá eru fjögur neðri deildar lið dregin út og munu keppa um tvö laus sæti í næstu viku. Þrjú Vesturlandslið eru skráð til leiks í bikarkeppninni að þessu sinni;…Lesa meira