Íþróttir

true

Skallagrímur mætir Haukum í undanúrslitum

Dregið var í viðureignir undanúrslita Geysisbikars kvenna og karla í hádeginu í dag. Skallagrímur var í pottinum í bikarkeppni kvenna og dróst móti Haukum. Liðin mætast í Laugardalshöll fimmtudaginn 13. febrúar. Sama kvöld mætast KR og bikarmeistarar Vals í hinum undanúrslitaleiknum. Stjarnan, bikarmeistarar karla, mæta sigurvegaranum úr viðureign Tindastóls og Þór Ak., sem fram fer…Lesa meira

true

Skallagrímskonur á leið í höllina

Skallagrímskonur eru komnar í undanúrslit Geysisbikarsins í körfuknattleik, eftir stórsigur á ÍR í gærkvöldi, 51-86. Leikið var í Seljaskóla í Reykjavík. Um skyldusigur var að ræða hjá Skallagrími. Borgarnesliðið er í hörkubaráttu í fjórða sæti Domino‘s deildarinnar en ÍR spilar í 1. deild. Heimaliðið skoraði fyrstu stigin en Skallagrímskonur voru sterkari og komust í 2-8.…Lesa meira

true

Stórt tap í Hveragerði

Skallagrímur reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hamar, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Hveragerði og það voru heimamenn sem sigruðu örugglega, 110-78. Borgnesingar byrjuðu leikinn illa, skoruðu ekki stig fyrstu sex mínúturnar og á meðan komust Hvergerðingar í 15-0. Skallagrímsmenn náðu þó ágætis rispu…Lesa meira

true

Tap í fjörugum leik

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn liði Álftaness á útivelli, 127-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Eins og lokatölur gefa til kynna var leikurinn hraður og bæði lið settu allt sitt púður í sóknarleikinn. Áhorfendur fengu því skemmtilegan og fjörugan leik. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og staðan…Lesa meira

true

Sáu aldrei til sólar

Snæfellskonur máttu sín lítils gegn Íslandsmeisturum Vals á útivelli þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Valskonur voru sterkari allan tímann og sigruðu að lokum örugglega, 93-54. Snæfell lék án Gunnhildar Gunnarsdóttur og Emese Vida og til að bæta gráu ofan á svart sneri Rósa Kristín Indriðadóttir sig illa snemma í…Lesa meira

true

Sigur í kaflaskiptum leik

Skallagrímur vann nauman sigur á Grindavík, 58-55, í kaflaskiptum leik í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina lengst framan af fyrri hálfleik. Þær voru mun sterkari í upphafsfjórðungnum, leiddu frá fyrstu mínútu og höfðu átta stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 19-11. Þær höfðu yfirhöndina í upphafi annars fjórðungs, en…Lesa meira

true

Gestirnir of stór biti

Snæfellingar máttu játa sig sigraða á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Gestirnir frá Egilsstöðum höfðu undirtökin allan leikinn og sigruðu að lokum örugglega, 68-93. Höttur byrjaði betur og skoraði fyrstu níu stig leiksins en Snæfellingar fundu sig ekki í fyrsta leikhluta. Mest höfðu gestirnir 15 stiga…Lesa meira

true

Háspenna í Hólminum

Snæfell beið lægri hlut gegn Keflavík, 75-84, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi og fengu áhorfendur æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Gestirnir höfðu heldur yfirhöndina í upphafi og leiddu með sex stigum um miðjan fyrsta leikhulta. Þá tóku Snæfellskonur góða…Lesa meira

true

Aðventumót púttara í Borgarbyggð

Hið árlega aðventumót  púttara í Borgarbyggð fór fram 17. desember síðastliðinn í Eyjunni í Brákarey. Til leiks mættu ellefu konur og þrettán karlar. Keppt var með og án forgjafar. Konurnar voru í feikna stuði þennan dag og skildu karlana hreinlega eftir. Guðrún Helga Andresdóttir vann kvennaflokkinn án forgjafar á 56 höggum. Önnur varð Anna Ólafsdóttir…Lesa meira

true

Stefán og Tryggvi valdir í landsliðið

Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp A landsliðs karla í knattspyrnu sem leikur tvo vináttuleiki í Bandaríkjunum nú í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Kanada 15. janúar og sá síðari gegn El Salvador 19. janúar. Báðir voru þeir lykilmenn í liði ÍA í Pepsi Max deildinni á liðnu…Lesa meira