Fréttir

true

Austan steytingi spáð á morgun

Í dag er spáð breytilegri átt 3-10 m/s og víða verður bjart, en stöku él við ströndina. Frost yfirleitt 0 til 7 stig. Vaxandi austanátt sunnan- og vestantil í kvöld og hlýnandi veður. Austan 18-25 m/sek í fyrramálið og rigning, slydda eða snjókoma með köflum, en hægari um landið austanvert og talsverð úrkoma um tíma…Lesa meira

true

Styrkir veittir til fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til níu einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins að því er kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Markmiðið með styrkveitingunum er að efla starfsemi staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni; „en þeir gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim…Lesa meira

true

Samkomulag um hlutdeild Íslands í makrílveiðum – SFS mótmæla harðlega

Í morgun var undirritað samkomulag milli Íslands, Noregs, Bretlands og Færeyja um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Er þetta í fyrsta skipti sem hlutdeild Íslands í makrílveiðum er viðurkennd formlega af þeim þjóðum sem að samkomulaginu standa auk Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Auk áðurnefndra fjögurra landa teljast Grænland og Evrópusambandið strandríki…Lesa meira

true

Lið Snæfells féll úr leik í VÍS bikarnum

Lið Snæfells hélt til höfuðborgarinnar á sunnudaginn þar sem það mætti liði KR í sextán liða úrslitum VÍS bikarkeppni kvenna. Leikið var á Meistaravöllum. Fyrir leikinn voru þær röndóttu mun sigurstranglegri enda sem stendur í þriðja sæti Bónus-deildar á sama tíma og lið Snæfells situr í sjötta sæti 1. deildar. Það fór enda svo að…Lesa meira

true

Innflytjendur 17,3 prósent íbúa Vesturlands

Innflytjendur á Vesturlandi voru 3.081 eða rúmlega 17,3% mannfjöldans 1. janúar 2025. Innflytjendum fækkaði lítilsháttar hlutfallslega á milli ára. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Með innflytjanda er átt við þann sem fæddur er erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis. Á landinu öllu var hlutfall innflytjenda…Lesa meira

true

Magga dagmamma lýkur brátt störfum eftir aldarþriðjung

Þegar skírnarnöfn samborgaranna eru nefnd er ekki endilega víst að fólk kveiki á perunni eins og sagt er. Átti sig ekki á því um hvern er rætt. Þegar Magný Guðmunda Þórarinsdóttir er nefnd leggja færri við eyrun en þegar Magga dagmamma er nefnd, þó um sé að ræða sömu konuna. Möggu dagmömmu þekkja flestir Skagamenn…Lesa meira

true

Stálu 20 jólatrjám

Í vikunni sem leið voru 24 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sjö umferðarslys voru tilkynnt í umdæminu. Í þremur tilvik var ekið utan í kyrrstæð ökutæki og í einu óhappinu ekið utan í rafmagnskassa. Aðeins varð líkamstjón í einu af þessum óhöppum. Þar var um að ræða…Lesa meira

true

UMFG setur upp píluaðstöðu

Ungmennafélag Grundarfjarðar vinnur nú hörðum höndum við að setja upp glæsilega píluaðstöðu í kjallaranum að Grundargötu 30. Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir, formaður UMFG, fékk hugmyndina og Tryggvi Hafsteinsson stjórnarmaður hefur keyrt þetta verkefni áfram og fengið liðsinni margra sjálfboðaliða og áhugamanna um píluíþróttina. Ungmennafélagið hefur fengið nokkra styrki fyrir uppbyggingunni eins og frá ÍSÍ og Lions…Lesa meira

true

Innköllun vegna aðskotahlutar í grjónagraut

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Bónus grjónagraut frá Þykkvabæ vegna aðskotahluts sem fannst í einum poka. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallað vöruna. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Bónus Vöruheiti: Grjónagrautur 1 kg Best fyrir: 01.02.2026 Strikamerki: 5690599004494 Nettómagn: 1 kg Framleiðsluland: Ísland Dreifing: Bónus verslanir um allt…Lesa meira

true

Bæjarráð vill þjónustusamning vegna bókasafns

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn fimmtudag var undir tveimur dagskrárliðum rætt um samskipti við nágrannasveitarfélagið Hvalfjarðarsveit og kostnaðarþátttöku í ýmissi þjónustu sem íbúum þar stendur til boða á Akranesi. Undir dagskrárliðnum „Samstarf sveitarfélaga – kostir og gallar“ var rifjað upp að Hvalfjarðarsveit hafi hafnað ósk Akraneskaupstaðar um að hefja viðræður um sameiningu sveitarfélaganna. „Bæjarráð telur…Lesa meira