Fréttir

true

Stærsti hleðslugarður ON er nú í Borgarnesi

Nýr og glæsilegur hleðslugarður Orku náttúrunnar hefur verið opnaður við Digranesgötu í Borgarnesi. Þar eru alls 14 tengi til hleðslu á rafbílum. Opnunarhátíð er í dag frá klukkan 13 til 17. Þá verða sérfræðingar á staðnum og gefa góð ráð. Á morgun, laugardag, verða hamborgarar, franskar og gos frá Grillhúsinu gefið, meðan að fólk hleður…Lesa meira

true

Ómar Björn genginn í raðir Skagamanna

Knattspyrnufélag ÍA og Ómar Björn Stefánsson hafa skrifað undir samning til næstu þriggja ára. Ómar Björn er tvítugur framherji sem kemur til félagsins frá Fylki. Jón Þór Hauksson þjálfari segir að Ómar Björn sé öflugur framherji á spennandi aldri. „Hann er kröftugur, sterkur og tæknilega góður leikmaður og ég er sannfærður um að hans eiginleikar…Lesa meira

true

María Rut vill leiða lista Viðreisnar í NV kjördæmi

María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Frá því greinir María Rut á FB síðu sinni. „Það er mikið ábyrgðahlutverk að bjóða sig fram til starfa á Alþingi. Ég hef verið svo lánsöm að fá að taka sæti á þingi fyrir…Lesa meira

true

Stafræn meðmælasöfnun hafin

Landskjörstjórn opnaði í gær stafrænt meðmælakerfi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember og geta stjórnmálasamtök, sem hafa fengið úthlutuðum listabókstaf frá dómsmálaráðuneytinu, nú stofnað stafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sín í öllum kjördæmum. Stafræna meðmælakerfið var unnið í samstarfi Stafræns Íslands og Þjóðskrár og var þróun þess komin áleiðis þegar ljóst varð að kosið yrði í lok nóvember.…Lesa meira

true

Lágmarksverð mjólkur hækkar til bænda

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda. Fyrir fyrsta flokk mjólkur hækkar lágmarksverð til bænda um 2,73%, fer úr 132,68 kr./ltr í 136,30 kr./ltr. „Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í desember 2023 og tók gildi í…Lesa meira

true

Uppstilling verður á öllum listum Viðreisnar

Öll landshlutaráð Viðreisnar hafa nú ákveðið að það verði uppstilling á listum flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Fundað var í Norðvesturráði í gærkvöldi. „Mikil umræða spannst um hvort fara ætti í uppstillingu eða prófkjör og mikill hugur að stefna næst að prófkjöri, þegar rýmri tími gefst til að raða á lista,“ segir í tilkynningu. „Landshlutaráð í…Lesa meira

true

Fóru í glímuferð til Bandaríkjanna

Skemmtileg glímuför var farin til Maryland í Bandaríkjunum í byrjun október. Fjórar glímuhetjur spenntu á sig beltið og héldu í Vesturheim. Það voru þau Þórður Páll Ólafsson glímukóngur, Kristín Embla Guðjónsdóttir glímudrottning til þriggja ára og þar á meðal síðasta árs, Einar Eyþórsson glímukóngur síðasta árs ásamt Jóhönnu Vigdísi Pálmadóttur sem meðal annars hefur hlotið…Lesa meira

true

Áskorun um að þingmenn sýni kjósendum stórhug

„Stjórnarskrárfélagið skorar á þingheim að sýna stórhug. Sýnið í verki að þið treystið þjóðinni ef þið viljið að þjóðin treysti ykkur. Komið henni ánægjulega á óvart. Tækifærið er núna, áður en kjörtímabilið er úti. Þingmenn úr öllum flokkum geta tekið höndum saman og losað um óafsakanlega kyrrstöðu í stjórnarskrármálinu fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember.“ Þannig hljómar…Lesa meira

true

Bíó fyrir nemendur í Grundaskóla

Fulltrúar á vegum kvikmyndahátíðarinnar UngRIFF komu í heimsókn í Grundaskóla á Akranesi á dögunum og voru með sýningu fyrir 8. og 9.bekk í Bíóhöllinni. Myndin sem var sýnd heitir Lars er LOL og er norsk mynd frá árinu 2023. Myndin fjallar um Amöndu sem tekst á við áskoranir unglingsáranna þar sem hún vill falla inn…Lesa meira

true

Hittu nemendur í fjölmiðlanámi við HÍ

Fulltrúar þriggja landshlutamiðla; Páll Ketilsson frá Víkurfréttum, Gunnar Gunnarsson frá Austurglugganum (á Teams) og Magnús Magnússon frá Skessuhorni hittu í morgun vaskan hóp nemenda í blaðamannsnámi við Háskóla Íslands. Kennari þeirra er Valgerður Anna Jóhannsdóttir. Rætt var um fjölmiðlun í víðum skilningi, fjölmiðla á landsbyggðinni, mikilvægi þeirra; tækifæri og áskoranir og gestirnir spurðir spjörunum úr.…Lesa meira