Stærsti hleðslugarður ON er nú í Borgarnesi

Nýr og glæsilegur hleðslugarður Orku náttúrunnar hefur verið opnaður við Digranesgötu í Borgarnesi. Þar eru alls 14 tengi til hleðslu á rafbílum. Opnunarhátíð er í dag frá klukkan 13 til 17. Þá verða sérfræðingar á staðnum og gefa góð ráð. Á morgun, laugardag, verða hamborgarar, franskar og gos frá Grillhúsinu gefið, meðan að fólk hleður bílana sína.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}

„Orka náttúrunnar leggur mikið upp úr því að skapa ánægjulega upplifun fyrir viðskiptavini á meðan verið er að hlaða rafbíllinn. Hleðslugarður ON í Borgarnesi býður upp á, líkt og hleðslugarður ON í Öskjuhlíð, mylluspil, trampólín og bekki til að sitja á og njóta góðra stunda með fallega fjallasýn fyrir framan sig,“ segir í tilkynningu frá ON. Í nýja Hleðslugarðinum er 1 MW í boði og á hverju tengi er hægt að hlaða á allt að 480 kW og eru hleðslurnar afar þægilegar í notkun. Góður upplýsingaskjár er á stöðvunum sem tryggir frábæra upplifun og eru leiðbeiningar á nokkrum tungumálum, þar á meðal íslensku. Í hleðslugarðinum var mikil áhersla lögð á að tryggja gott aðgengi fyrir öll og nægt pláss er til að hlaða stærri bifreiðar eða bíla með atfanívagn.

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}
{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "\r\n\r",
  "innerBlocks": []
}
Stærsti hleðslugarður ON er nú í Borgarnesi - Skessuhorn