
María Rut vill leiða lista Viðreisnar í NV kjördæmi
María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar, hefur lýst því yfir að hún vilji leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Frá því greinir María Rut á FB síðu sinni. „Það er mikið ábyrgðahlutverk að bjóða sig fram til starfa á Alþingi. Ég hef verið svo lánsöm að fá að taka sæti á þingi fyrir Viðreisn í þrígang. Þann tíma hef ég nýtt vel til að máta mig við hlutverkið, pontuna og finna það í hjartanu hvort þetta sé hlutverk sem ég er raunverulega reiðubúin að taka að mér. Alla leið. Ég var krakkinn sem fór heim í hádeginu og horfði á Alþingisrásina - ekki Nágranna eins og hinir krakkarnir. Sumt er kannski ekki umflúið. Eða skrifað í einhver ský,“ skrifar hún.
„En niðurstaðan mín er sú að mig langar af öllu hjarta að verða þingmaður. Og ég held að ég geti orðið góður þingmaður. Þingmaður sem er með skýran áttavita, framtíðarsýn og stendur í lappirnar. Og mig langar að verða þingmaður fyrir Norðvesturkjördæmi. Heimakjördæmið mitt. Kjördæmið sem ég brenn fyrir að sjá í blóma. Nú er uppstillingarnefnd að störfum og það verður spennandi að sjá hvað verður. Þetta er stuttur sprettur. Ég elska stutta spretti. En er líka fín í langhlaupum. En ég er tilbúin að reima á mig hlaupaskóna. Verði ég valin til að leiða lista Viðreisnar í NV-kjördæmi þá heiti ég því að ég mun hlaupa og hlaupa hratt. Í 45 daga spretti fyrir kosningar en fyrst og fremst fyrir fólkið í Norðvesturkjördæmi eftir kosningar verði ég kjörin á Alþingi. Ég finn gríðarlegan meðbyr með Viðreisn. Ég held að þjóðin sé reiðubúin til að skipta um kúrs. Með frjálslyndi, almannahagsmuni og mennsku að vopni.“