Fréttir

true

Dagskrá Írskra daga komin á fullt

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst fyrr í vikunni. Eftir því sem líður nær helgi þéttist dagskráin, eins og sjá má í auglýsingum meðal annars í Skessuhorni. Blaðamaður Skessuhorns skellti sér síðdegis í gær í myndarúnt og tók nokkrar myndir. Veðrið var með ágætum og stemningin góð.Lesa meira

true

Nýtt iðnaðarsvæði skipulagt á Hvanneyri

Borgarbyggð áformar skipulag 23 atvinnulóða á nýju skipulögðu svæði við Melabraut á Hvanneyri, en það er svæðið nyrst og austast í útjaðri þéttbýlis á staðnum. Hið skipulagða svæði markast af beitilandi Staðarhóls til vesturs, Melabraut til norðurs, Grímarsstaðavegi til austurs og beitilandi Hvanneyrar til suðurs. Hið skipulagða svæði er 5,8 hektarar. Á svæðinu verður lögð…Lesa meira

true

Útilegukort gildir ekki um helgina og aldurstakmark er 23 ár

Frá því er greint á vefsíðu Akraneskaupstaðar að um þessa helgi, þegar Írskir dagar fara fram, að gert er það frávik frá reglum að Útilegukortið gildir ekki þessa einu helgi á tjaldsvæðinu í Kalmansvík. Er það eina undantekning ársins hvað þetta snertir. Þá er jafnframt tekið fram að aldurstakmark til að fá að nýta tjaldstæðið…Lesa meira

true

Unnur Stella hannar fyrir Ljósið

Í júlímánuði hófst á ný styrktarátak Nettó og Ljóssins og verður nú hægt að kaupa varning til styrktar Ljósinu í öllum verslunum Nettó. Í ár fékk markaðsteymi Ljóssins og Nettó Unni Stellu Níelsdóttur, myndlistarkonu og eiganda Start Studio, til að hanna listaverk fyrir átakið og er afurðin m.a. einstaklega fallegur taupoki sem er til sölu…Lesa meira

true

Tap Skallagríms gegn Tindastóli

Skallagrímur í Borgarnesi tók á móti Tindastól í 4. deild karla í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn var Tindastóll með 13 stig í fimmta sæti deildarinnar en Skallagrímur með 6 stig í áttunda sæti.  Leikurinn hófst með miklum látum. Tindastóll lék með vindinn í bakið en vindur er nokkuð algengur á Skallagrímsvelli. Tindastóll setti mikla…Lesa meira

true

Misjafnt hvernig sveitarfélög haga opnunartíma á sumrin

Nokkur er mismundandi milli sveitarfélaga á Vesturlandi hvernig opnunartíma skrifstofa þeirra er háttað yfir sumartímann. Skessuhorn leitaði upplýsinga hjá sex stærstu sveitarfélögunum. Borgarbyggð og Dalabyggð hafa ráðhús og sveitarstjórnarskrifstofu lokuð í tvær viku í sumar frá 22. júlí til 5. ágúst. Hjá Grundarfjarðarbæ segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri að ráðhúsið verður lokað í fjóra virka daga…Lesa meira

true

Skátar fá endurnýjaðan samning um lóðina í Skorradal

Í gær, þegar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra var á ferðinni á Akranesi í öðrum erindagjörðum, var heimsókn hans nýtt til hins ítrasta. Þá undirritaði ráðherra samning til tuttugu ára um framlengingu leigu á landi á Stóru Drageyri í Skorradal til Skátafélags Akraness. Þar á og rekur félagið Skátaskálann Skátafell. Samningur um landið var upphaflega gerður…Lesa meira

true

Yfirlýsing bæjarstjórnar vegna gjaldþrots Skagans 3X

Bæjarstjórn Akraness var að senda frá sér yfirlýsingu vegna tíðinda morgunsins þess efnis að Skaginn 3X hafi óskað eftir gjalþrotaskiptum. „Þungar fréttir berast nú úr atvinnulífinu hér á Akranesi, en Skaginn 3X hefur óskað eftir að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta rótgróna fyrirtæki hefur um árabil verið eitt stærsta og glæsilegasta fyrirtæki bæjarins og…Lesa meira

true

Bágbornar vegmerkingar á enn verri vegum

Sveitarstjóri Dalabyggðar hefur áframsend til forsvarmanna Vegagerðarinnar ljósmyndir af ástandi vega í sveitarfélaginu. Myndirnar tók vegfarandi um nýverið átti leið um þjóðveg 60 frá Bröttubrekku og í Búðardal. „Viðkomandi hafði orð á því að það væri ekki á það bætandi að keyra þessa þröngu vegi, með ástand þeirra eins og það er, en þar hafa…Lesa meira

true

Tökum lokið í Hvalfjarðarsveit

Baltasar Kormákur og hans framleiðslulið hafa lokið tökum á þáttaröðinni King and Conqueror í Hvalfjarðarsveit. Þættirnir eru unnir fyrir sjónvarpsstöðvarnar CBS og BBC og fóru tökur fram fyrr í vikunni. Um er að ræða miðaldasjónvarpsseríu sem byggir á sögu Vilhjálms sigursæla og Haraldar II. Englandskonungs sem voru uppi á elleftu öld. Framleiðslulið Baltasar hafði komið…Lesa meira