Unnur Stella Níelsdóttir hannar vörur sem seldar eru í Nettó til stuðnings Ljósinu.

Unnur Stella hannar fyrir Ljósið

Í júlímánuði hófst á ný styrktarátak Nettó og Ljóssins og verður nú hægt að kaupa varning til styrktar Ljósinu í öllum verslunum Nettó. Í ár fékk markaðsteymi Ljóssins og Nettó Unni Stellu Níelsdóttur, myndlistarkonu og eiganda Start Studio, til að hanna listaverk fyrir átakið og er afurðin m.a. einstaklega fallegur taupoki sem er til sölu í verslunum Nettó um allt land. Allur ágóðinn rennur óskiptur til endurhæfingar fólks sem hefur greinst með krabbamein. Þetta er í annað skiptið sem Ljósið fer í samstarf við Nettó en í fyrra söfnuðust fimm milljónir í sambærilegu átaki.

Krabbamein kemur öllum við

Ljósið byggir á hugmyndafræði iðjuþjálfunar. Áhersla er lögð á heildræna nálgun og að veita endurhæfingu fyrir alla þá sem greinast með krabbamein, 16 ára og eldri. „Við veitum líka þjónustu við aðstandendur og það hefur Ljósið alltaf gert, því krabbamein kemur öllum við og hefur mikil áhrif,“ segir Þórhildur Sveinsdóttir, einn af iðjuþjálfum Ljóssins. „Þegar fólk kemur í Ljósið veit það að það er að fara í líkamlega endurhæfingu, það veit að það fær heilmikla fræðslu um hreyfingu, næringu, um sjálfsmyndina og álagið, en það veit kannski ekki hvað þessi jafningjastuðningur er mikils virði.“

Viðtöl við fagaðila kosta þau sem leita til Ljóssins ekki neitt og önnur þjónusta er niðurgreidd. Fólk sem greinist með krabbamein utan höfuðborgarsvæðisins getur nýtt sér fjarfundabúnað.

Styrktarátak Nettó og Ljóssins hófst 1. júlí og varir út mánuðinn. Auk sundtöskunnar og spilsins Jenga, sem verk Unnar Stellu prýðir, rennur hluti af ágóða sölu Coop salernispappírs og Folkington’s safa í glerflöskum til Ljóssins í júlí. Vörurnar fást í Nettó um allt land og á netto.is

Verk eftir Unni Stellu.

Unnur Stella hannar fyrir Ljósið - Skessuhorn