Ágúst Heimisson félagsforingi í Skátafélagi Akraness og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra undirrituðu samning um áframhald leigu lands í Skorradal. Ljósm. mm

Skátar fá endurnýjaðan samning um lóðina í Skorradal

Í gær, þegar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra var á ferðinni á Akranesi í öðrum erindagjörðum, var heimsókn hans nýtt til hins ítrasta. Þá undirritaði ráðherra samning til tuttugu ára um framlengingu leigu á landi á Stóru Drageyri í Skorradal til Skátafélags Akraness. Þar á og rekur félagið Skátaskálann Skátafell.