Sumargleði. Ljósm. úr safni/ Ásmundur Sveinsson

Misjafnt hvernig sveitarfélög haga opnunartíma á sumrin

Nokkur er mismundandi milli sveitarfélaga á Vesturlandi hvernig opnunartíma skrifstofa þeirra er háttað yfir sumartímann. Skessuhorn leitaði upplýsinga hjá sex stærstu sveitarfélögunum. Borgarbyggð og Dalabyggð hafa ráðhús og sveitarstjórnarskrifstofu lokuð í tvær viku í sumar frá 22. júlí til 5. ágúst. Hjá Grundarfjarðarbæ segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri að ráðhúsið verður lokað í fjóra virka daga vegna sumarleyfa, þ.e. 1.-2. og 6.-7. ágúst, eða sitt hvorum megin við verslunarmannahelgina. Hjá Snæfellsbæ eru engar lokanir fyrirhugaðar í sumar og ekki hefð fyrir því. „Hins vegar eru einstakir starfsmenn í fríi í júlí og ágúst og þá geta mál þurft að bíða en oftar en ekki náum við að leysa úr flestu sem kemur inn á okkar borð,“ segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri. Loks segir Steinar Adolfsson hjá Akraneskaupstað að bæjarfélagið sé ekki með sérstakan sumaropnunartíma á bæjarskrifstofu og því verði opið með hefðbundnum hætti eins og aðra tíma ársins. Ekki hefur borist svar frá Stykkishólmsbæ.

Misjafnt hvernig sveitarfélög haga opnunartíma á sumrin - Skessuhorn