
Á fjölskyldutónleikum á Þyrlupallinum í gærkvöldi. Ljósm. mm
Dagskrá Írskra daga komin á fullt
Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst fyrr í vikunni. Eftir því sem líður nær helgi þéttist dagskráin, eins og sjá má í auglýsingum meðal annars í Skessuhorni. Blaðamaður Skessuhorns skellti sér síðdegis í gær í myndarúnt og tók nokkrar myndir. Veðrið var með ágætum og stemningin góð.