Fréttir

true

Vildu skerpa á tímaáætlun

Síðasta miðvikudag boðaði menningar- og safnanefnd til fundar Jón Allansson forstöðumann Byggðasafnsins í Görðum og óskaði eftir stöðu á fyrirhugaðri útgerðasýningu í nýju bátahúsi byggðasafnsins. Jón veitti nefndinni upplýsingar um stöðu mála og þakkaði nefndin Jóni fyrir þær varðandi sýninguna í safninu. Fram kemur í fundargerð að það séu vonbrigði að opnun sýningarinnar hafi dregist…Lesa meira

true

Öld frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar

Fimmtudaginn 4. júlí nk. verða hundrað ár liðin frá fæðingu Sveinbjarnar Beinteinssonar. Af því tilefni munu Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti og Kvæðamannafélagið Iðunn í Reykjavík í sameiningu standa fyrir viðburði í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Kynnir verður Þóra Elfa Björnsson og mun hún einnig lesa ljóð Sveinbjarnar. Það mun Gunnar J. Straumland og gera.…Lesa meira

true

Bætir tvö þúsund tonnum við strandveiðikvótann

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar aukna aflaheimild upp á tvö þúsund tonn af þorski á yfirstandandi strandveiðitímabili. Heildarráðstöfun í þorski til strandveiða verður því 12.000 tonn í stað 10.000 tonna. „Með þessari aukningu hækkar hlutfall strandveiða á þorski upp í rúm 55% af þorski innan félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins.…Lesa meira

true

Vilja grenndargáma burt frá byggðasafninu

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar í gær tók nefndin fyrir nýja staðsetningu grenndargáma við Byggðasafnið í Görðum. Menningar- og safnanefnd ítrekaði óánægju sína á staðsetningu grenndargáma við Byggðasafnið í Görðum og vill þá af svæðinu. Nefndin lagði áherslu á mikilvægi þess að finna gámunum varanlega staðsetningu fjarri menningarstarfsemi bæjarins og lagði til að horft…Lesa meira

true

Bregðast við skertum bragðgæðum í neysluvatni

Í ágúst 2023 olli þörungavöxtur í lóninu í Berjadalsá skertum bragðgæðum á neysluvatni á Akranesi. Brugðist var við af hálfu Orkuveitunnar með því að auka útskipti á vatni í lóninu og hreinsa botngróður ásamt því að tekin voru sýni til greininga. Þetta kemur fram á vefsíðu Akraneskaupstaðar. Til þess að koma í veg fyrir að…Lesa meira

true

Úlfur úlfur kominn á YouTube

Söngleikurinn Úlfur úlfur hefur nú verið gerður aðgengilegur á YouTube rás Grundaskóla á Akranesi. Hinn nýútskrifaði árgangur 2008 setti sýninguna upp síðastliðinn vetur undir stjórn Einars Viðarssonar. Alls voru sýningarnar ellefu talsins og var uppselt á þær allar. Höfundar söngleiksins eru þeir Einar Viðarsson, Flosi Einarsson og Gunnar Sturla Hervarsson.Lesa meira

true

Fyrsti sigurleikur Reynis í sumar

Afríka og Reynir Hellissandi áttust við í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á OnePlus vellinum á Álftanesi. Fyrir leik voru bæði liðin án sigurs í riðlinum, Afríka hafði tapað öllum sínum leikjum á meðan Reynir hafði tapað fjórum og gert tvö jafntefli. Gestirnir komust yfir strax á sjöundu…Lesa meira

true

Skagakonur á sigurbraut á ný

Það var mikið undir í leik ÍA og ÍBV í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gær þegar liðin mættust í Akraneshöllinni. Fyrir viðureignina var ÍA í sjötta sæti með níu stig eftir tvo tapleiki í röð á meðan ÍBV var með sjö stig og tvo sigurleiki í röð eftir erfiða byrjun í mótinu. Fyrir leik…Lesa meira

true

Dregur úr atvinnuleysi

Í maí mánuði voru 5.800 einstaklingar atvinnulausir hér á landi samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Hlutfall atvinnulausra var 2,5%, hlutfall starfandi var 80% og atvinnuþátttaka 82%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,2 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi stóð nánast alveg í stað og atvinnuþátttaka minnkaði lítillega, eða um 0,8 stig.Lesa meira

true

Unnið við vegabætur

Sumarið er tími viðgerða á þjóðvegum landsins. Vinnuflokkar færa sig á milli staða og taka hvern veghlutann af öðrum og leggja yfir nýtt slitlag. Meðfylgjandi mynd var tekin á Akrafjallsvegi norðan við fjallið í gær. Þá var meðal annars heimreiðin að Hvanneyri lagfærð sama dag svo eitthvað sé nefnt. Þegar slík vinna stendur yfir er…Lesa meira