
Strandveiðiafla landað í Grundarfirði fyrr í sumar. Ljósm. tfk
Bætir tvö þúsund tonnum við strandveiðikvótann
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag breytingu á reglugerð sem heimilar aukna aflaheimild upp á tvö þúsund tonn af þorski á yfirstandandi strandveiðitímabili. Heildarráðstöfun í þorski til strandveiða verður því 12.000 tonn í stað 10.000 tonna.