
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunin hlutu Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson fyrir verkefnið „Umhverfisvænt sementslaust AlSiment steinlím“. Báðir eru þeir meistaranemar; Heiðar Snær í efnaverkfræði við DTU Tækniháskólann í Danmörku en Gonzalo nemur jarðhitaverkfræði við Háskóla Íslands. Verðlaunaverkefnið sýnir fram á fýsileika þess að…Lesa meira








