
Í gær undirrituðu Akraneskaupstaður og SF smiðir verksamning um fyrirhugaðar framkvæmdir í Brekkubæjarskóla sem hefjast á næstu dögum. Um er að ræða endurgerð 1. hæðar í Brekkubæjarskóla sem er um 2.100 fermetrar auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2. og 3. hæð. Verkið skiptist í tvo áfanga og skal fyrri áfanga lokið fyrir árslok 2024…Lesa meira








