
Séð yfir golfhermana tvo í aðstöðunni.
Bönkerinn góð viðbót við golfið á Akranesi
Bönkerinn - Innigolf var opnaður skömmu fyrir jól á Smiðjuvöllum 8 á Akranesi. Þar er hægt að iðka innigolf í tveimur splunkunýjum golfhermum og er aðstaðan til fyrirmyndar. Opið hús var í Bönkernum síðasta föstudag og laugardag og var aðsókn með ágætum. Eigendur eru Einar Logi Einarsson og feðgarnir Sigurður Elvar Þórólfsson, Axel Fannar Elvarsson og Ísak Örn Elvarsson. Blaðamaður Skessuhorns hitti Einar Loga að máli í liðinni viku og segir hann að þeir félagar eigi það sammerkt að hafa allir mikinn áhuga á golfi og þeim hafi fundist ábót á þessa menningu og tækifæri fyrir innigolfi á Akranesi. „Við allir höfum verið að sækja í þessa golfherma í bæinn og okkur fannst vanta aðstöðu hér á Akranesi og tókum þá ákvörðun að kýla á þetta.“