Verslun í heimabyggð á Vesturlandi. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Hundrað milljarða jól

Innlend greiðslukortavelta í desember nam 100 milljörðum króna og hækkaði um 0,4% á milli ára, en í desember 2022 nam kortaveltan 99,67 milljörðum. Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman upplýsingar um neyslu landsmanna. Greiðslukortavelta í verslun nam 62,7 milljörðum króna í desember og hækkaði um 4% á milli ára. Erlend kortavelta drógst saman um 9,7% og nam 14,5 milljörðum króna. Desember mánuður reyndist eini mánuður ársins þar sem er ekki aukning í erlendri kortaveltu á milli ára en hún var hvað mest í júlí þegar hún var 41,7 milljarður króna.

Hundrað milljarða jól - Skessuhorn