
Golfheimur býður upp á golf og pílu á sama stað
Seinni hlutann í janúar verður fyrirtækið Golfheimur opnað á Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. Þar verður aðstaða með tveimur golfhermum af nýjustu gerð og fjórum píluspjöldum. Eigendur Golfheims eru þau Valdís Þóra Jónsdóttir og Karl Ómar Karlsson golfkennarar sem eru með áralanga reynslu í þeim fræðum. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku í aðstöðuna þar sem allt var á fullri ferð í undirbúningi fyrir opnunina og hitti Valdísi Þóru að máli til að forvitnast um hvað væri í vændum. Valdís Þóra er fyrrum afrekskona í golfi og var þrisvar sinnum Íslandsmeistari í höggleik og einu sinni í holukeppni. Hún var atvinnumaður í golfi frá árinu 2014, þar af var hún fjögur ár á Evrópumótaröð kvenna og besti árangur hennar var 3. sæti á LET-móti í Ástralíu, sem er jafnframt besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á atvinnumóti í golfi í efsta styrkleikaflokki.