
Við undirskrift verksamnings. Frá vinstri: Alfreð Þór Alfreðsson, Arnbjörg Stefánsdóttir, Ragnar B. Sæmundsson, Haraldur Benediktsson, Fannar Magnússon, Sturla Magnússon, Sigurður Páll Harðarson, Einar Brandsson, Anna Sólveig Smáradóttir og Anna María Þráinsdóttir. Ljósm. akranes.is
Framkvæmdir í Brekkubæjarskóla að hefjast
Í gær undirrituðu Akraneskaupstaður og SF smiðir verksamning um fyrirhugaðar framkvæmdir í Brekkubæjarskóla sem hefjast á næstu dögum. Um er að ræða endurgerð 1. hæðar í Brekkubæjarskóla sem er um 2.100 fermetrar auk kjallararýmis og nokkurra rýma á 2. og 3. hæð. Verkið skiptist í tvo áfanga og skal fyrri áfanga lokið fyrir árslok 2024 og þeim seinni í lok árs 2025.