Fréttir

true

Samið um greiðslu til sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk

Ríki og sveitarfélög undirrituðu í dag samkomulag um breytingu á fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Samkomulagið felur í sér að útsvarsprósenta sveitarfélaga hækkar um 0,23% með samsvarandi lækkun tekjuskattsprósentu ríkisins. Hækkunin nemur um sex milljörðum króna miðað við árið 2024. Í kjölfar samkomulags frá í desember 2022 fluttust 5,7 milljarðar króna frá ríki til…Lesa meira

true

Sextíu ára vígsluafmæli Lundarkirkju

Lundarkirkja í Lundarreykjadal átti sextíu ára vígsluafmæli í ár, en hún var vígð í júní árið 1963. Kirkjusmiðurinn var Þorvaldur Brynjólfsson frá Hrafnabjörgum og sá hann einnig um gröft frá grunni. Hafði hann tekið fram í upphafi að hann myndi taka að sér umsjón með smíði kirkjunnar og lána alla vinnu sína fyrst um sinn.…Lesa meira

true

Miklar fjárfestingar og lántaka einkennir næstu ár hjá Akraneskaupstað

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2024 og þriggja ára áætlun 2025 til 2027 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Fram kemur í frétt um áætlunina að gjaldskrár kaupstaðarins verða hækkaðar um 7% fyrir utan sérstakar ákvarðanir í einstaka gjaldskrám. Útsvar verður óbreytt á næsta ári, eða 14,74%. Álagningarprósentur…Lesa meira

true

Óska eftir tillögum að nafni

Snæfellsbær óskar eftir tillögum frá íbúum að nafni á nýtt hús eldri borgara við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík. Um er að ræða almenna hugmyndasamkeppni og er hún öllum opin. Hugmyndaríkir íbúar Snæfellsbæjar eru hvattir til að láta ljós sitt skína. Hægt er að senda inn tillögur á vefinn snb.is til og með 28. desember. Öllum…Lesa meira

true

Samþykktu að kaupa flygil í skólann

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar sl. miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Sigríði Láru Guðmundsdóttur, skólastjóra Heiðarskóla. Lagði Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti fram tillögu þess efnis að sveitarstjórn samþykkti beiðni frá skólastjóra Heiðarskóla um kaup á flygli fyrir skólann. Hljóðfærið mun nýtast nemendum skólans sem stunda píanónám á vegum Tónlistarskólans á Akranesi þar sem kennslan fer…Lesa meira

true

Það verður suðvestan rok og úrkoma í dag

Frameftir degi er gul viðvörun í gildi um vestanvert landið vegna suðvestan roks. Því fylgir talsverð rigning eða slyddu og snjókomu til fjalla í fyrstu, en síðar verða dimm él og lélegt skyggni. Viðvörun er til klukkan 18 í dag við Breiðafjörð en til miðnættis á spásvæði Faxaflóa. Veðrinu fylgja erfið akstursskilyrði. Í tilkynningu frá…Lesa meira

true

SF smiðir með lægsta tilboðið í endurbætur á Brekkubæjarskóla

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar á miðvikudaginn voru opnuð tilboð í endurbætur á 1. hæð Brekkubæjarskóla og hljómaði kostnaðaráætlun upp á 813 milljónir króna. Þau fimm fyrirtæki sem sendu inn tilboð voru eftirfarandi: K16 ehf. var með tilboð sem hljóðaði upp á 792 milljónir, tilboð Land og verk var upp á 825 milljónir, Sjammi…Lesa meira

true

Telja það ekki hlutverk sveitarfélaga að safna dýrahræjum

Samkvæmt minnisblaði sem birt hefur verið á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er það mat sambandsins að söfnun, flutningur og önnur meðhöndlun aukaafurða dýra sé ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. Sambandið hefur á síðustu mánuðum haft til umfjöllunar málefni sem varða ráðstöfun aukaafurða dýra, sem einnig eru þekkt undir heitunum dýraleifar eða dýrahræ. „Sveitarfélög þurfa að hafa…Lesa meira

true

Aldan hélt jólamarkað

Aldan, starfsstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu í Borgarnesi, hélt jólamarkað í gær, miðvikudaginn 13. desember. Þar var handverk til sölu sem starfsfólk Öldunnar hefur búið til undanfarnar vikur og mánuði. Kerti, kertastjakar, styttur, nammikransar og skartgripir voru m.a. til sölu ásamt því að uppboð var á jólatré sem skreytt var með konfekti. Gestir og…Lesa meira

true

Þrettánda tap Snæfells kom á móti Stjörnunni

Stjarnan og Snæfell áttust við í Subway deild kvenna í körfuknattleik á þriðjudagskvöldið og var leikurinn í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Þremur dögum áður höfðu liðin mæst á sama stað í VÍS bikarnum þar sem Stjörnukonur unnu öruggan 83:50 sigur og ljóst að verkefnið yrði erfitt hjá gestunum úr Stykkishólmi. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi…Lesa meira