Skjáskot úr myndbandi Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um urðun af ýmsu tagi.

Telja það ekki hlutverk sveitarfélaga að safna dýrahræjum

Samkvæmt minnisblaði sem birt hefur verið á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga er það mat sambandsins að söfnun, flutningur og önnur meðhöndlun aukaafurða dýra sé ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. Sambandið hefur á síðustu mánuðum haft til umfjöllunar málefni sem varða ráðstöfun aukaafurða dýra, sem einnig eru þekkt undir heitunum dýraleifar eða dýrahræ. „Sveitarfélög þurfa að hafa þessa niðurstöðu til hliðsjónar þegar til umræðu er hvort þau skuli koma að söfnun, flutningi eða annarri meðhöndlun þessa flokks afurða. Hafa þarf að í huga að með því að safna dýraleifum getur ábyrgð á réttri lokameðhöndlun flust yfir á sveitarfélög,“ segir í minnisblaðinu.

Telja það ekki hlutverk sveitarfélaga að safna dýrahræjum - Skessuhorn