Gestir gæddu sér á vöfflum og skoðuðu munina. Ljósmyndir: sþ

Aldan hélt jólamarkað

Aldan, starfsstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu í Borgarnesi, hélt jólamarkað í gær, miðvikudaginn 13. desember. Þar var handverk til sölu sem starfsfólk Öldunnar hefur búið til undanfarnar vikur og mánuði. Kerti, kertastjakar, styttur, nammikransar og skartgripir voru m.a. til sölu ásamt því að uppboð var á jólatré sem skreytt var með konfekti. Gestir og gangandi gæddu sér á vöfflum á meðan handverkið var skoðað en greinilegt er að mikið hæfileikafólk starfar hjá Öldunni.

Aldan hélt jólamarkað - Skessuhorn