Heiðarskóli. Ljósm arg.

Samþykktu að kaupa flygil í skólann

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar sl. miðvikudag var tekið fyrir erindi frá Sigríði Láru Guðmundsdóttur, skólastjóra Heiðarskóla. Lagði Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti fram tillögu þess efnis að sveitarstjórn samþykkti beiðni frá skólastjóra Heiðarskóla um kaup á flygli fyrir skólann. Hljóðfærið mun nýtast nemendum skólans sem stunda píanónám á vegum Tónlistarskólans á Akranesi þar sem kennslan fer fram að mestu leyti í Heiðarskóla. Hljóðfærið mun einnig nýtast fyrir aðra viðburði sem haldnir eru í Heiðarskóla.

Samþykktu að kaupa flygil í skólann - Skessuhorn