Fréttir

true

Landsbjörg fékk veltibílinn að gjöf

Síðastliðinn laugardag færði Brautin, bindindisfélag ökumanna, Slysavarnafélaginu Landsbjörg að gjöf veltibílinn sem Brautin hefur rekið frá árinu 1995. Frá þeim tíma hafa yfir 400 þúsund upplifað bílveltu í bílnum. Núverandi veltibíll er sá sjötti í röðinni, en veltibíllinn hefur verið endurnýjaður á um fimm ára fresti með góðum stuðningi Heklu og Volkswagen sem hafa reglulega…Lesa meira

true

Sunnanmenn sigursælir á Þorsteinsmóti

Þorsteinsmótið í bridds var haldið í gær í Logalandi í Borgarfirði. Mótið er eins og kunnugt er minningarmót um Þorstein Pétursson kennara frá Hömrum sem um árabil beitti sér fyrir framgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Þorsteinsmót er að venju langstærsta briddsmót í landshlutanum og mögulega einnig utan höfuðborgarsvæðisins. Þátttaka á mótinu var góð, en 48 pör…Lesa meira

true

Langþráður sigur Snæfells, ÍA vann Ármann en Skallarnir töpuðu

Áttunda umferðin í 1. deild karla í körfuknattleik var spiluð í gærkvöldi þar sem Vesturlandsliðin Snæfell og ÍA unnu sigra á meðan Skallagrímur þurfti að sætta sig við tap. Snæfell úr Stykkishólmi batt enda á sex leikja taphrinu þegar þeir tóku á móti liði Selfoss og unnu leikinn með ellefu stiga mun, lokatölur 91:80 fyrir…Lesa meira

true

Saumastofan Emra gefur gjafir til barna frá Grindavík

Hera Jóhannsdóttir rekur saumastofuna Emra ehf. þar sem hún saumar barnaföt til sölu ásamt því að selja ýmsar barnavörur. Undanfarin þrjú ár hefur Hera aðstoðað jólasveina með því að selja þrettán gjafapakka sem hugsaðir eru til skógjafa. Með fram því hefur hún einnig gefið til góðgerðarmála í desember en í fyrra styrkti hún flóttafólk frá…Lesa meira

true

Litlar skuldir og traustur rekstur einkennir Hvalfjarðarsveit

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2024 ásamt þriggja ára áætlun 2025-2027 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar á miðvikudaginn. Af lestri hennar kemur skýrt í ljós að sveitarfélagið með sína 756 íbúa er afar vel statt fjárhagslega, sama hvort litið er til rekstrar eða efnahags. Álagningarhlutfall útsvars á næsta ári verður óbreytt, eða 13,91%. Einnig verður álagningarhlutföll…Lesa meira

true

Ríkisstjórnin samþykkti húsnæðisstuðning til Grindvíkinga

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur.   Sértækur fjárhagslegur…Lesa meira

true

Sorpútboð samþykkt í Grundarfjarðarbæ

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar í gær voru lögð fram gögn vegna sorpútboðs til samþykktar og var um að ræða útdrátt úr útboðslýsingu og drög að nýrri sorpsamþykkt. Fyrir tveimur vikum var haldinn kynningarfundur bæjarfulltrúa með ráðgjöfum vegna sorpútboðsins. Helstu atriði í nýju fyrirkomulagi sorpmála eru: Fjórar tunnur við heimili séu meginreglan, en að heimili geti…Lesa meira

true

Leggja til að gengið verði til samninga við Basalt arkitekta

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar sem haldinn var síðasta mánudag lagði ráðið til við bæjarstjórn að gengið yrði til samninga við Basalt arkitekta varðandi deiliskipulagsvinnu á Jaðarsbökkum. Á fundinum var farið yfir næstu skref verkefnisins og lagði Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi bæjarins fram greinargerð vegna vals á ráðgjöfum fyrir skipulag á Jaðarsbökkum. Fram kom…Lesa meira

true

Jólahald í skugga áfalla, sorgar og missis

Mánudaginn 27. nóvember kl. 20 býður Akraneskirkja til samverustundar í kirkjunni um jólahald í skugga áfalla, sorgar og missis. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina og flytur erindi þar sem meðal annars er komið inn á viðbrögð við sorg og áföllum, hvernig takast megi á við þann tíma sem er framundan, sem og þau bjargráð…Lesa meira

true

Samkeppni komin í matvöruverslun í Búðardal

Fyrr í vikunni hóf KM þjónustan í Búðardal nýja þjónustu. Auk varahluta og annarrar vöru fyrir landbúnað og tæki, er nú hægt að kaupa matvörur í versluninni við Vesturbraut 20. Þar með hefur KM þjónustan hafið samkeppni við Krambúðina sem rekur dagvöruverslun í Búðardal eins og kunnugt er. „Nú erum við komnir af stað með…Lesa meira