
Í Gestastofu Snæfellsness að Breiðabliki lauk í gær ársfundi fulltrúaráðs Svæðisgarðs Snæfellsness. Að sögn Ragnhildar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra svæðisgarðsins, var mikill samhugur og kraftur í fundarmönnum. Á meðfylgjandi mynd klæðast þeir allir Snæfellsness bolum og mætti segja að slagorð á þeim eigi einkar vel við hópinn: „Orka sem þú sérð, finnur og heyrir – Áfram Snæfellsnes!“Lesa meira








