
Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag kynnti Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamála- og íþróttamannvirkja tillögur að breytingum á opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum fyrir árið 2024. Á barnaþingi 2022 kom fram skýr vilji barna- og ungmenna á Akranesi til að lengja opnunartíma sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum á kvöldin, bæði á virkum dögum og um helgar.…Lesa meira








