Fréttir

true

Eyrbyggjurefill hlaut í gær styrk

Stykkishólmsdeild Noræna félagsins veitti í gær Eyrbyggjasögufélaginu styrk til refilsaumsverkefnis félagsins sem formlega verður hleypt af stokkunum næstkomandi laugardag í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi, kl. 14 með fjölbreyttri dagskrá. Stjórn Stykkishólmsdeildar Norræna félagsins, Sólborg Olga Bjarnadóttir gjaldkeri, Sigurlína Sigurbjörnsdóttir ritari og fráfarandi formaður Þórhildur Pálsdóttir veittu styrkinn á Fosshótel Stykkishólmi og það var ritari Eyrbyggjasögufélagsins, Anna…Lesa meira

true

Sker út grasker til að sinna sköpunarþörfinni og upplifa núvitund

Spjallað við sálfræðinginn, leikarann og graskers listamanninn Knút Haukstein Ólafsson Knútur Haukstein Ólafsson ólst upp í Reykjavík en flutti ásamt fjölskyldu sinni til Akraness árið 2010. Í dag er hann þrítugur, menntaður leikari og nýútskrifaður með BS í sálfræði en í náminu tengdi hann ýmislegt við sjálfan sig þegar hann lærði um einhverfu og ADHD.…Lesa meira

true

Veittist að lögreglu

Afskipti voru höfð af 33 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Þá voru teknar myndir af 18 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél. Einn ökumaður er grunaður um ölvun við akstur og veittist hann einnig að lögreglumönnum er af honum voru höfð afskipti en hann var yfirbugaður og handtekinn. Þá…Lesa meira

true

Hrekkjavaka í leik- og grunnskólum á Skaganum – myndasyrpa

Það var hrollur í blaðamanni Skessuhorns þegar hann kíkti í heimsókn í morgun í nokkra leik- og grunnskóla á Akranesi. Fyrst var ferðinni heitið í Brekkubæjarskóla, síðan á leikskólana Akrasel og Vallarsel og síðasti viðkomustaður var Grundaskóli. Alls konar verur voru á ferli en blaðamaður náði þó að smella nokkrum myndum af áður en hann…Lesa meira

true

Afhentu Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2023

Fyrir hádegi í dag voru hin árlegu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Að venju er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem stendur fyrir þessari verðlaunaveitingu og stýrði Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar samkomunni. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi um hvaða garðar, býli eða fyrirtæki/stofnanir verðskulduðu að hljóta verðlaun fyrir árið…Lesa meira

true

Valt næstum fram af kletti

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi komu sjö umferðaróhöpp inn á borð lögreglu í liðinni viku og var um að ræða minni háttar meiðsli í einhverjum þeirra. Í einu málinu var hlaupahjóli ekið utan í tvær kyrrstæðar bifreiðar með þeim afleiðingum að skemmdir hlutust af og reyndist ökumaður hlaupahjólsins ölvaður. Einnig valt sexhjól í Laxárdal. Bifreið…Lesa meira

true

Heima-Skagi á lágstemmdum nótum – Myndasyrpa

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á ferðinni út um allan neðri Skagann langt fram á kvöld. Veðrið var kyrrt og stillt og var undirritaður einn af þeim fjölmörgu sem tóku röltið þetta kvöld til að hlusta á tónlistarfólk spila á hinum ýmsu stöðum. Fyrsti viðkomustaður…Lesa meira

true

Skipulögðu taflmót í grunnskólanum í Stykkishólmi

Vikuna 16.-20. október var hin árlega félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavika Samfés haldin víðs vegar um landið. Af þessu tilefni skipulögðu tveir ungir skákáhugamenn taflmót fyrir bæði miðstig og efsta stig grunnskólans í Stykkishólmi og sáu þeir alfarið um að safna vinningum og stýra mótinu. Þetta voru þeir Hjalti Jóhann Helgason, nemandi í 10. bekk og Stefán…Lesa meira

true

Hans og Gréta 10 ára á morgun

Hans og Gréta, barna- og íþróttavöruverslun við Þjóðbraut 1 á Akranesi, fagnar 10 ára afmæli á morgun, 1. nóvember. Hrefna Björnsdóttir stofnaði verslunina sem barnaloppu á sínum tíma en verslunin hefur nú þróast út í það að bjóða einungis upp á ný föt frá hágæða vörumerkjum fyrir börn og fullorðna. Blaðamaður Skessuhorns hitti á Hrefnu…Lesa meira

true

Vill flýta uppbyggingu dreifikerfis raforku

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður (D) mælti á fimmtudaginn fyrir þingsályktunartillögu um að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að flýta uppbyggingu flutningskerfis raforku, nánar tiltekið Blöndulínu 3, Holtavörðulínu 1, Holtavörðulínu 3 og Suðurnesjalínu 2, með það að markmiði að draga úr sóun, truflun og flutningstapi flutningskerfisins og stuðla þannig að bættu afhendingaröryggi og orkunýtni. Á þingsályktunartillögunni…Lesa meira