Hrefna Björnsdóttir eigandi Hans og Grétu. Ljósm. sþ.

Hans og Gréta 10 ára á morgun

Hans og Gréta, barna- og íþróttavöruverslun við Þjóðbraut 1 á Akranesi, fagnar 10 ára afmæli á morgun, 1. nóvember. Hrefna Björnsdóttir stofnaði verslunina sem barnaloppu á sínum tíma en verslunin hefur nú þróast út í það að bjóða einungis upp á ný föt frá hágæða vörumerkjum fyrir börn og fullorðna. Blaðamaður Skessuhorns hitti á Hrefnu í tilefni dagsins en 20% afsláttur verður á öllum vörum í búð og á vefverslun frá miðnætti í kvöld.

Hans og Gréta 10 ára á morgun - Skessuhorn