Fulltrúar verðlaunahafa. Sitjandi eru fulltrúar Bakkakots, f.v. þau Kristján, Katrín, Kristín og Sindri. Standandi f.v. eru Unnar Bjartmarsson, Inga Dóra Halldórsdóttir og Bjarni Guðmundsson. Ljósmyndir: mm

Afhentu Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2023

Fyrir hádegi í dag voru hin árlegu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Að venju er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem stendur fyrir þessari verðlaunaveitingu og stýrði Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar samkomunni. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi um hvaða garðar, býli eða fyrirtæki/stofnanir verðskulduðu að hljóta verðlaun fyrir árið 2023. Nefndin safnaði saman þeim tilnefningum sem bárust og fór í vettvangsferðir til að meta aðstæður. Einnig var samfélagsviðurkenning afhent. Verðlaunahöfum var færð birkiplanta frá Páli og Ritu í Grenigerði auk viðurkenningarskjals. Þá fengu handhafar snyrtilegasta býlisins að venju afhent merki sem sett verður við bæjarskiltið út við þjóðveg.

Afhentu Umhverfisverðlaun Borgarbyggðar 2023 - Skessuhorn