Fréttir

true

Bilun á símasambandi í Ólafsvík

Bilun hefur orðið á tæknibúnaði á símamastri NOVA við pósthúsið í Ólafsvík og hefur tengibox á mastrinu losnað úr festingu, væntanlega vegna hvassviðris. Að sögn talsmanns hjá NOVA er verið að greina bilunina og senda tæknimenn vestur til viðgerðar og reiknað er með að takist að koma símasambandinu í lag fyrir kvöldið. Allmargir íbúar Ólafsvíkur…Lesa meira

true

Nýir raunveruleikaþættir gefnir út um þjálfun hrossa

Fyrsti þátturinn í sjö þátta seríunni Ride masters var gefinn út sunnudaginn 15. október síðastliðinn. Ride masters eru í formi raunveruleikaþátta þar sem fimm knapar etja kappi í þjálfun hrossa. Fimm þekkt ræktunarbú taka þátt í keppninni með því að leggja til einn hest hvert en eitt búið er staðsett á Vesturlandi og er það…Lesa meira

true

Skrifstofan lokuð eftir hádegi

Skrifstofa Skessuhorns er lokuð eftir hádegi í dag, föstudaginn 20. október, vegna verkefna starfsfólks utan hennar. Bendum á tölvupóst skessuhorn@skessuhorn.is vegna efni til ritstjórnar, en auglýsingar@skessuhorn.is til markaðsdeildar. Beinn sími ritstjóra er 894-8998.Lesa meira

true

Ýmis brot ökumanna

Afskipti voru höfð af 28 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 145 km hraða. Þrír ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur og einn um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum vegna farsímanotkunar við akstur og…Lesa meira

true

Flýtum vinnslu blaðs vegna mögulegra áhrifa kvennaverkfalls

Fjölmörg samtök kvenna og launafólks á vinnumarkaði blása þriðjudaginn 24. október til kvennaverkfalls. Framkvæmd og útfærsla verkfallsins er lögð í hendur hvers og eins starfsmanns. Búist er við að áhrifa verkfallsins gæti víðsvegar í samfélaginu enda konur og kvár um helmingur fólks á vinnumarkaði. Vegna mögulegra áhrifa verkfallsins verður vinnslu Skessuhorns í þessari viku flýtt…Lesa meira

true

Krókaleiðir lífsins

Rætt við Margréti Birnu Kolbrúnardóttur á Snæfellsnesi sem framleiðir vöggusett til útsaums Hvað þarf til að kona taki sig upp af heimaslóðum og komi sér fyrir í fjarlægri sveit – og er hún í raun svo fjarlæg? Stundum kemur lífið fólki á óvart og leiðir það á nýjar slóðir sem þó reynast gamlar. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

Árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins sem stendur í október nær hápunkti í dag, 20. október, á bleikum degi. Skessuhorn tekur undir hvatningu Krabbameinsfélagsins til landsmanna um að vera bleik þannig að Bleiki dagurinn í ár verði sá allra bleikasti hingað til.Lesa meira

true

Eyjólfur Ingvi í stutt leyfi

Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti sveitarfélagsins Dalabyggðar hefur óskað eftir leyfi frá störfum í sveitarstjórn í þrjá mánuði frá 1. nóvember nk. að telja. Erindi hans var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 12. október sl. og leyfið veitt. Að sögn Eyjólfs Ingva er hann að fara í fæðingarorlof frá sveitarstjórn þar sem hann og kona hans…Lesa meira

true

Punkteraði á blaðamanni

Þau er fjölbreytt verkefnin sem blaðamenn Skessuhorns takast á við í störfum sínum. Meðal annars ljósmyndun á vettvangi. Nýverið var Guðrún Jónsdóttir að taka mynd af kirkjunni á hinu forna höfuðbóli og höfðingjasetri Kolbeinsstöðum í samnefndum hreppi á Snæfellsnesi. Alla jafnan væri ekki hægt að flokka það sem neitt sérstakt áhættustarf. En hvar hún stikaði…Lesa meira

true

Hollvinafélag Hallgrímskirkju stofnað í næstu viku

Á næsta ári verður þess minnst að 350 ár verða liðin síðan sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson lést sextugur að aldri. Til stendur að minnast hans með ýmsum hætti á þessum tímamótum og eitt verkefnanna eru Hallgrímsdagar að hausti sem auglýstir var í Skessuhorni vikunnar og standa yfir 27. -29. október. Annað verkefni sem er í undirbúningi…Lesa meira