Benedikt Líndal og Guðmar Þór Pétursson eru dómarar í Ride masters.

Nýir raunveruleikaþættir gefnir út um þjálfun hrossa

Fyrsti þátturinn í sjö þátta seríunni Ride masters var gefinn út sunnudaginn 15. október síðastliðinn. Ride masters eru í formi raunveruleikaþátta þar sem fimm knapar etja kappi í þjálfun hrossa. Fimm þekkt ræktunarbú taka þátt í keppninni með því að leggja til einn hest hvert en eitt búið er staðsett á Vesturlandi og er það ræktunarbúið á Skáney í Borgarfirði. Hver knapi fær úthlutaðan einn hest sem viðkomandi hefur ekki haft kynni af áður. Munu knaparnir svo takast á við þrautir í hverjum þætti sem þeir fá tvær vikur til að undirbúa áður en farið er í próf en einn knapi mun standa uppi sem sigurvegari.