Fréttir

true

Hittust á Hvammstanga og spiluðu ringó

Við breiða sem víðast út íþróttina Undanfarin ár hafa nokkur félög víða um land stundað íþróttagreinina ringó. En, hvað er ringó? Skessuhorn fékk Flemming Jessen, sem sýnt hefur mikinn drifkraft í útbreiðslu íþróttarinnar, til að útskýra það. „Ringó er leikur sem spilaður er á velli/flöt sem er á stærð við blakvöll 18×9 og hentar vel…Lesa meira

true

Hvasst verður við fjöll um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 17. október á milli kl. 12 og 18, er spáð snörpum suðaustan hviðum við Hafnarfjall, allt að 35 m/s. Einnig á utanverðu Kjalarnesi og í Hvalfirði, sem og á norðanverðu Snæfellsnesi á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Vegagerðin biðlar til ökumanna að taka tillit til þessa.Lesa meira

true

Urðu Íslandsmeistarar fimm ár í röð

Í kvöld klukkan 21:15 sýnir Ríkissjónvarpið fyrsta þáttinn af fimm af Skaganum, heimildarþáttum um lið ÍA sem vann einstakt afrek í íslenskri knattspyrnusögu þegar það varð Íslandsmeistari karla fimm ár í röð á árunum 1992-1996. Í þáttunum fara þjálfarar, leikmenn, andstæðingar, stjórnarmenn, stuðningsfólk og fjölmiðlafólk yfir þetta tímabil.Lesa meira

true

Starfshópur ráðherra vill leggja niður starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn fundur forsvarsmanna heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna með umhverfisráðherra. Þar var tilkynnt um að leggja eigi niður heilbrigðiseftirlitin í núverandi mynd og færa málaflokkinn frá sveitarfélögum og að nær öllu leyti til ríkisins. Gert er ráð fyrir að matvælahlutinn færist til Matvælastofnunar og umhverfis- og hollustuháttamálin í nýja Umhverfis- eða loftslagsstofnun. Guðlaugur Þór Þórðarson,…Lesa meira

true

Úrslit í Mýrahrútnum 2023

Hrútasýningin Mýrahrúturinn var haldinn að Lækjarbug laugardaginn 14. október. Skráðir voru á sýninguna tíu mislitir lambhrútar, 14 kollóttir, tveir ferhyrndir og 21 hvítur hyrndur. Voru þeir á svæðinu frá Dalsmynni í vestri að Borgarnesi í suðri. Sýningin hófst á því að skoðaðir voru mislitir hrútar þar voru dæmdir bestir hrútur nr. 75 frá Staðarhrauni svartur,…Lesa meira

true

Hundrað ára öryggi – afmæli Slökkviliðs Borgarbyggðar – myndasyrpa

Síðastliðinn laugardag var aldarafmæli Slökkviliðs Borgarbyggðar fagnað í Hjálmakletti í Borgarnesi. Fjöldi fólks var mætt til að samfagna, enda er gott slökkvilið gríðarlega mikilvægur þáttur í hverju samfélagi. Auk íbúa og annarra gesta mátti þar sjá fulltrúa frá öðrum slökkviliðum landsins. Ávörp fluttu Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri og Heiðar Örn…Lesa meira

true

Áttu góðu gengi að fagna á Íslandsmóti para í keilu

Skagafólki í keilunni gekk vel á Íslandsmóti para sem fram fór um helgina. Íslandsmeistarar urðu Ísak Birkir Sævarsson ÍA og Katrín Fjóla Bragadóttir KFR og í öðru sæti urðu Steinunn Inga Guðmundsdóttir og Magnús Sigurjón Guðmundsson ÍA. Ísak og Katrín settu nokkur Íslandsmet. Í einum leik 526 stig og 1.410 í þremur leikjum. Auk þess…Lesa meira

true

Lögðu fram tvær bókanir um umhverfisslys í sjókvíaeldi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var umræða um það umhverfisslys að fjöldi frjórra eldislaxa hefur sloppið úr sjókví í Patreksfirði og leitar nú upp í laxveiðiár m.a. í Borgarbyggð. Tvær bókanir um málið voru lagðar fram og ganga þær mjög misjafnlega langt. Bókun meirihlutans Davíð Sigurðsson sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokks lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar, Við töpum öll á einsleitninni – Jafnrétti er ákvörðun, var haldin síðastliðinn fimmtudag. Þar kynnti frú Elíza Reid forsetafrú viðurkenningarhafa. Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu var Akraneskaupstaður ásamt 10 öðrum sveitarfélögum, 22 stofnunum og 56 fyrirtækjum. Þetta er annað árið í röð sem Akraneskaupstaður hlýtur þessa viðurkenningu. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu…Lesa meira

true

Höfðu stólaskipti í ríkisstjórn

Í gær bauð forystufólk í ríkisstjórninni til blaðamannafundar í Eddu, húsi íslenskra fræða. Eftir afsögn Bjarna Benediktssonar úr starfi fjármálaráðherra var ljóst að breytinga væri að vænta á ríkisstjórinni. Þær breytingar urðu hins vegar eins litlar og mögulegt var í stöðunni. Bjarni Benediktsson verður nú utanríkisráðherra og hefur sætaskipti við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem…Lesa meira